Menntamál - 01.02.1973, Page 16

Menntamál - 01.02.1973, Page 16
Um 45. gr. S.Í.B. gerir ekki tillögur til breytinga á þess- ari grein, en vill undirstrika nauðsyn þess, að dregið verði verulega úr heimanámi nemenda og stefnt verði markvisst að því, að allt nám fari fram í skólunum. Með breyttum starfsháttum ætti þetta að verða kleift. í þessu sambandi er rétt að geta þess, að síðasta fulltrúaþing S.Í.B., sem haldið var í júní ] 972, taldi að vinnutími nemenda væri oft á tíðum hættulega langur vegna of mikiltar heimavinnu, sundurslitins starfstíma í skóla og slæmrar aðstöðu til náms í skólunum. Erfitt er að segja nákvæmlega til um, hversu langur vikulegur kennslutímafjöldi er hæfilegur, það er að sjálfsögðu háð því hversu nrikil heimavinna börnunum er ætluð. Með því að hafa hliðsjón af þessu tvennu fæst raunveru- legur starfstími nemenda, og má þó raunar segja, að hér verði alltaf um matsatriði að ræða. En nám er starf og eðlilegt er því, að við mat á lengd starfsdags nemenda sé miðað við, hvað fullorðnir telja sér hæfilegan vinnudag. Vinnu- tími hér á landi hefur á síðustu árum verið styttur úr 48 klst. á viku í 44 klst. og á síðast liðnu ári í 40 klst. Á sama tíma hefur starfs- tími nemenda vegna aukins námsefnis verið lengdur, m.a. gerir þetta frumvarp ráð fyrir nokkurri lengingu. Það er athyglisvert, að I at- vinnuþróun J>essarar aklar hefur vinnudagurinn stytzt verulega, en samtímis aukast afköst ein- staklingsins. Hér er um árangur að ræða, sem stafar af betri og markvissari skipulagningu á störfum manna. Því er Jrað ekki endilega víst, að með lengri vikulegum starfstíma nemenda náist þcim mun lietii árangur. Hér skiptir megin- máli, að vinnudagurinn sé skipulagður skynsam- lega og að börnunum sé ekki íjryngt með of miklu heimanámi, sem þau í flestum tilvikum hvorki kunna né geta skipidagt Jjannig, að góð- ur árangur náist. Þess eru Jrví miður allt of mörg dæmi, að nemendur vanrækja heimanám sitt, annað hvort vegna mikils álags eða af ýms- um öðrum ástæðum. Þessu fylgir sú hætta, að barnið venst smám saman við þá tilfinningu að liafa ekki gert skyldu sína, og J>;ið Jrarf ekki að fjölyrða um, hversu slæmt veganesti Jjað er, Jjeg- ar til fullorðinsáranna kemur. Um 46. gr. S.Í.B. gerir tillögu um, að leyfisdagar í grunn- skóla, auk helgidaga þjóðkirkjunnar, verði á- kveðnir í reglugerð. Frumvarpið gerir ráð fyrir verulegri fækkun leyfisdaga. Afiðað við núgildandi reglur um leyfi MENNTAMÁL 14

x

Menntamál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.