Menntamál - 01.02.1973, Síða 21
starfstíma, án þess að til þurfi að koma lenging
skólaársins. Slíkt getur þó komið til álita, el'
sérstakt ástand skapast.
3. Starfsaðferðir við kennslu og gerð náms-
efnis lrefur um langt árabil tekið litlum breyt-
ingum og því ltefur skólinn ekki verið fær um
að svara þeirn kröfum, sem <ir þróun á ýmsum
sviðum mannlífsins hefur beimtað síðustu ára-
tugina. Skipulagðar raunhæfar aðgerðir til end-
urbóta í skólamálum voru ekki hafnar fyrr en
með stofnun skólarannsóknadeildar. Starf benn-
ar fram til þessa hefur á ýmsan hátt átt örðugt
uppdráttar, en liefur þó m.a. orðið til þess, að
allt námsefni er nú í gagngerri endurskoðun og
sumt á tilraunastigi í skólunum. Vonandi er
þetta aðeins vísir að því, sem koma skal. En
stórkostlegt átak þarf til þess, að þær breytingar,
sem þarf að gera, verði að raunveruleika á stutt-
um tíma. Þess vegna þurfa mikilvæg atriði, sem
eiga að tryggja framkvæmdir að vera skýr og
ótvíræð, en mega ekki vera með óljósu orðalagi
eða að þar sé um undanslátt að ræða eins og
fram kemur í t.d. 5. gr. og 42. gr. frv.
Þegar ]>ess er gætt hver raun befur orðið á um
framkvæmd fræðslulaganna frá 1946, er ekki
ástæðulaust að krefjast þess, að lög séu þannig
úr garði gerð, að markmiði þeirra verði náð.
Um starfslið grunnskóla
Enginn dregur í efa, að auk þess að rniðla
þckkingu og kenna nemendum sínum sjálfstæð
vinnubrögð við leit að frekari þekkingu, þá er
skólinn og á að vera stór mótandi aðili uppvax-
andi æsku, þannnig að með vaxandi þroska öðl-
ist bún farsæl viðhorf til lífsins. Því er mikil-
vægt, að ])jóðfélagið tryggi skólunum bæfa starfs-
kiafta á hverjum tíma með því að gera skynsam-
legar kröfur um undirbúning til starfs, bafa á
boðstólum stofnanir, sem veita fullnægjandi
undirbúningsmenntun og endurhæfingu eftir
þörfum. Og síðast en ekki sízt þarf að láuna
störfin svo vel, að þau ])yki eftirsóknarverð.
Á allt þetta hefur nokkuð skort.
Kennarasamtökin hafa ítrekað farið fram á, að
n'ý lög um menntun og réttindi kennara verði
sett. Tillögur liggja nú fyrir í nefndaráliti frá
því í maí 1972 at hálfu nefndar, sem skipuð var
1970 af þáverandi menntamálaráðherra (sbr.
greinargerð með 32. gr.). Þessar tillögur hafa ekki
enn verið kynntar almenningi. En svo virðist sem
stuðzt hafi verið við þær, en ekki núgildandi lög,
þegar ákvæðin um embættisgengi skólastjóra
og kennara voru samin.
Áunnin réttindi verða ekki aíturkölluð með
nýrri lagasetningu.
Það hefur hins vegar þótt nauðsyn að hafa
undanþáguákvæði í 30. gr. um embættisgengi
skólastjóra og einnig í 34. gi. er varða skóla-
ráðskonur, húsverði og annað fast starfslið skóla.
Það eru réttmæt ákvæði, að starfsfólk, sem
lialdið hefur uppi tilteknum störfum með sónia,
eigi ekki á hættu að verða hrakið úr stöðum sín-
um, ])ótt nýjar reglur taki gikli, sem gera aðrar
eða meiri kröfur.
Því vekur það furðu nokkra, að undanþágu-
ákvæði skuli ekki vera sett, varðandi kennara
við elztu deildir grunnskóla (gagnfræðask.), sem
eru í föstu starfi án fullra réttinda, en þó með
fullu embættisgengi, sbr. 37. gr. laga nr. 48 um
gagnfræðanám. Til samanburðar má einnig
benda á ákvæði nýrra laga um menntaskóla nr.
12 frá 1970 (gr. 15), reglugerð um sömu skóla nr.
12 frá 1971 (55. gr.), og lög um kennaraháskóla
nr. 38 frá 1971 (12. gr. 3-lið og 24, gr.).
31. gr. fjallar um aðstoðarskólastjóra, sent er
nýtt starfsheiti. Þar er m.a. tekið fram, að aðstoð-
arskólastjóri sé staðgengill skólastjóra og vinni
undir stjórn hans. Virðist því staða hans vera
hliðstæð stöðu yfirkennara nú, þótt í greinargerð
sé tekið fram, að störf yfirkennara falli niður.
Óþarft er því að breyta um starfsheiti, enda hið
eldra gamalgróið og þjálla í notkun. Hinu ber
að fagna sem nýmæli, að „aðstoðarskólastjóri"
skal nú verða ríkisstarfsmaður að öllu leyti.
Annað nýmæli orkar tvímælis, þar sem
ráðningartími í þetta starf er hafður fimm ár,
þegar annað fast starfslið hlýtur æviráðningu.
Helztu rökin fyrir svo skömmum ráðningar-
tíma eru þau, að verði misbrestur á samvinnu
skólastjóra og aðstoðarskólastjóra, verði auðvelt
að losna við hinn síðarnefnda. Þetta eru veiga-
lítil rök. Yfirleitt mun samkomulag þessara aðila
MENNTAMÁL
19