Menntamál - 01.02.1973, Blaðsíða 24

Menntamál - 01.02.1973, Blaðsíða 24
endaráðs í öllum skólum, heldur sé eðlilegt að frumkvæði um stofnun þeirra sé lagt á herðar nemenda sjálfra. 7. I 25. gr. vantar skýrt ákvæði um, að nemendur þurfi að hafa aðstöðu til að matast í skól- anum sjálfum. Þetta hlýtur óhjákvæmilega að fylgja í kjölfar þeirrar viðleitni að flytja sem mest af allri námsvinnu nemenda inn í skólana, en þetta er svo þýðingarmikið atriði að rétt væri að taka það sérstaklega fram. Einnig þyrfti að vera skýr ákvæði um hámarks notkunartíma einstakra kennslustofa. 8. í 39. gr. frv. er heimilað að ráðnir séu fag- námstjórar innan einstakra fræðsluumdæma. Samskonar heimild þyrfti að vera fyrir hendi til að ráða fagnámsstjóra innan einstakra skóla, þeg- ar um stóra skóla er að ræða, eða í samhliða skólum í sama skólahverfi eða nágrannaskóla- hverfum, gegn afslætti á kennsluskyldu. 9. Óframkvæmanlegt með öllu virðist að fram- lengja starfstíma skóla, þótt ófyrirsjáanlegar tafir verði á skólastarfi á reglulegum skólatíma (42. gr.), og er þá vandséður tilgangur þess að setja ákvæði um slíkt í lög. 10. Óeðlilegt virðist, að skólaráðgjafar séu starfs- menn sálfræðideildar við fræðsluskrifstofur, en ekki þeirra skóla, sem þeir starfa í og fyrir (60. gr.). Það kann að vera hentugt að sálfræð- ingar og félagsráðgjafar, sem greinilega þurfa að starfa í mörgum skólastofnunum í senn, séu starfsmenn sérstakrar stofnunar utan skólanna sjálfra, en um skólaráðgjafa gegnir öðru máli. Þeim er ekki ætlað að annast fleiri nemendur en svo, að oft hlýtur allt starf þeirra að fara fram í einum skóla, og er full hætta á, að þeir ein- angrist frá annarri starfsemi í skólanum, ef þeir eru ekki ráðnir sem starfsmenn skólans, og yrði þá minna gagn af starfi þeirra en ella. Auk þess er sú tilhögun, sem frv. gerir ráð fyrir, til þess fallin að veikja stöðu skólanna og skólastjórn- arinnar gagnvart nemendum og öllum almenn- ingi. MENNTAMÁL 22 11. I frv. eru þær kröfur einar gerðar urn memit- un skólasálfræðinga, að þeir hafi lokið prófi í sálarfræði eða sálfræðilegri uppeldis- fræði (73. gr.), en engar kröfur gerðar um að þeir hafi einnig kennaramenntun, en í flestum nálægum löndum er lcigð á það mikil áherzla, að skólasálfræðingar séu jafnframt menntaðir sem kennarar .Stjórn FHK telur óeðlilegt, að hér séu gerðar vægari kröfur í þessu efni en til að mynda i Danmörku, og leggur því til að inn í frv. verði bætt ákvæði um að þessir starfsmenn skuli auk sálfræðimenntunar vera kennaramennt- aðir og lielzt hafa nokkra reynslu af kennslustörf- um. Hið sama hlýtur einnig að gilda um skólaráð- gjttfa að breyttu breytanda. Ofangreindar athugasemdir taldi stjórn FHK rétt að korna á framfæri við þá aðila, sem nú eiga að fjalla um frumvarpið. Þær fjalla flestar um minniháttar atriði, sem auðvelt ætti að vera að lagfæra, án þess að hagga í nokkru megin- stefnu og tilgangi frumvarpsins Eina athugasemdin, sem eitthvað snertir meg- inatriði, er atlnigasemdin undir tölulið 11, en þar er um að ræða meginatriði, sem að mati stjórnar FHK hefur meiri þýðingu en virðast kann á ytra borði. Að öðru leyti lýsir stjórn FHK yfir stuðningi sínum við öll helztu megin- markmið frumvarpsins, þar á meðal lengingu skcilaskyldu og árlegs skólatíma, sem hún telur óumflýjanlega nauðsyn. Og í heild telur stjórn FHK, að kostir frv. séu svo langtum mikilvæg- ari en ágallarnir, að ekki geti komið til mála að láta út af fyrir sig réttmætar aðfinnslur um einstök atriði verða til þess að tefja afgreiðslu þess, en um leið er auðvitað sjálfsagt að laga þá agnúa, sem hægt er með góðu rnóti.

x

Menntamál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.