Menntamál - 01.02.1973, Side 29

Menntamál - 01.02.1973, Side 29
einkum skipulag kennslunnar. Ég lield, að óheppilegt sé að skipta vinnutíma nemenda milli margs konar viðfangsefna bæði vegna námsins og uppeldisins sem sliks. Nemendum liættir þá til að missa yfirsýn yfir námið, og sömuleiðis er þetta rneira þreytandi cn þar sem einhvers konar annakerfi er og fáar greinar teknar fyrir í einu. Benda má á það, að samkv. frumvarpinu verður kennslutími á unglinga- stigi heldur styttri en nú er. í frumvarpinu er aðallega tekið mið af námskröfum svipuðum þeim, sem taldar eru á Norðurlöndum, og helg- ast þá kennslutíminn fyrst og fremst af því. Ef setja ætti ákveðið hámark vinnutíma á dag, yrði að hugsa dæmið upp á nýtt, og gæti það leitt til þess, að vinnutíminn yrði styttur veru- lega. í þessu sambandi skipta vinnubrögðin í kennslunni miklu máli, og taka verður veru- legan hluta af ]>ví, sem nú kallast heimanám inn í kcnnsluna sjálfa. Sumarskóli Hauliur: Ef við snúum okkur næst að ákvæði frumvarpsins um sumarskóla eða sumarnám. Teljið þið, að þetta geti orðið að veruleika og þá við hvaða aðstæður? Indriði: Þessi heimild er aðallega hugsuð fyrir litlu skólana og þau skólahverfi þar sem strjál- Itýli er mikið og skólahald erfitt. Það er kannski dálítið einkennilegt, að í okkar harðbýla landi skuli skólar starfa 5—6 mánuði, ]>egar veðurfar og samgöngur eru hvað erfiðastar. Hér er ein- göngu um heimild að ræða, og ekki er gott að segja, livort hún verður notuð. En ekki virðist iitilokað, einkum fyrir yngstu börnin, að hluti námsins verði færður til á árinu, þannig, að ekki verði kennt í mesta skammdeginu, en sumarnámskeið haldin í þess stað. Þetta er ýmsum erfiðleikum bundið, t.d. því, hvort kennarar taka þessum starfsháttum vel eða ekki, og þá rekst þetta líka á sumarstarf barna til sveita, sem við ræddum um áðan. Reynslan verður að skera úr í þessu máli. Kristján: Ég held að þetta ætti vel að vera fram- kvæmanlegt, einkum með yngstu börnin. Kannski er það erfiðast, að hér er á ferðinni ný hugsun, sem menn þurfa að venjast. Lenging skólaskyldu Haukur: Hvað viljið þið segja urn þá lengingu skólaskyldunnar, sem frumvarpið gerir ráð fyrir? Indriði: Þetta atriði frumvarpsins hefur verið geysilega mikið rætt, og ég vil lýsa þeirri skoð- un minni, að ég tel lengingu skólaskyldunnar í 9 ár sjálfsagða og óhjákvæmilega. Ég vil leggja á það áherzlu, að lenging skólaskyld- unnar liefur það félagslega markmið, að öllum sé tryggð jöfn aðstaða til menntunar. Ingi: Ég er því fylgjandi, að skólaskyldan verði lengcl í 9 ár. Það má kannski minna á það, að þctta er ekki í fyrsta skipti, sem rætt er um, að skólaskyldan nái til 16 ára aldurs. Þegar fræðslu- lögin frá 1946 voru í undirbúningi, var mikið rætt um, að skólaskvldan næði til 16 ára aldurs, og í greinargerð má sjá, að nefndarmenn voru þessu fylgjandi og auk þess ýmis sveitarfélög og skólanefndir. Hins vegar taldi nefndin, að erfitt kynni að vera að framkvæma svo langa skólaskyldu eins og þá stóð á, svo að einungis heimildarákvæði var sett í lögin. Ég tel, að rök fyrir lengingu skólaskyldunnar, séu þau, að jafna beri aðstciðu nemenda í þéttbýli og dreif- býli til náms, svo að nementlur standi, að loknu skyldunámi, jafnt að vígi gagnvart framhalds- námi. Þá krefst þjóðfélagið stöðugt meiri und- irbúningsmenntunar af þegnum sínum, og geta má ]tess, að þetta er sú þróun, sem átt hefur sér stað í nágrannalöndum okkar. Því má að sjálfsögðu ckki gleyma, að þetta kostar allt mikinn undirbúning og fjármagn, en þnö held ég sé fyrir hendi. Kristján: í mínum huga er það grundvallaratriði, að allir standi jafnt að vígi gagnvart fram- haldsnámi. Ég held, að það sé óhjákvæmilegt, að framhaldsskólastigið hefjist strax og skóla- skyldunni lýkur. Þetta tvennt verður að fara saman. Mér finnst ]tað ekki höfuðatriði, hvort MENNTAMÁL 27

x

Menntamál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.