Menntamál - 01.02.1973, Blaðsíða 33
Nám er starf.
þessu verið mikið athugað. í frumvarpinu
stendur, að það skuli koma til framkvæmda
eins fljótt og ástæður leyfa í hverju skólahverfi,
þó eigi síðar en innan 10 ára frá gildistöku.
Meðal atriða, sem gætu kornið fljótt til fram-
kvæmda, eru t.d. ýrnsar breytingar á yfirstjórn
og stjórnun, ákvæði um fræðslustjóra, fag-
námsstjóra, sum ákvæðin um próf, en atriði,
sem taka mun hvað lengstan tíma að fram-
kvæma, eru meðal annars þau, sem liáð eru
því, að mannvirki verði reist. Þá mun taka
alllangan tíma að koma á ráðgjafar- og sál-
fræðiþjónustu einkum vegna þess, að svo marga
starfsmenn þarf að mennta til þeirra starfa og
fáir eru fyrir hendi núna. Ég vil að lokurn segja
það, að mjög nauðsynlegt er að kanna vandlega,
hvaða undirbúning þarf að vinna í sambandi
við námsaðstöðu og námsaðgreiningu, til þess
að lenging skólaskyldunnar verði farsæl.
Indriði: Ég held það sé gott, að við gerum okkur
grein fyrir því, að þessar breytingar verða ekki
framkvæmdar nerna á alllöngum tíma. Endur-
skoðun námsefnis og breytingar á því taka
langan tíma, jafnvel þótt nægu fé væri til
þeirra varið. Geysimikið verk er framundan
varðandi skólabyggingar, og ekki minnkar það
með tilkomu þessara laga. Ég vil að lokum
benda á, að þau atriði, sem munu krefjast
mests fjármagns, eru ekki þau atriði, sem hvað
mesturn deilum hafa valdið eins og lenging
skólaskyldu eða árlegs skólatíma. Heldur eru
það endurbætur á skólastarfinu, námsefni, að-
staða til að vinna skólastarfið betur, þ.e. þau
atriði, sem allir eru sammála um að þurfi og
eigi að korna.
MENNTAMÁL
31