Vorið - 01.12.1954, Síða 4
122
V O R I Ð
Skyldum við þekkja hann?
„Hann kom til eignar sinnar,
og hans eigin menn tóku ekki viS
honum.“ — Jóh. 1, 11. —
Ég las einu sinni smásögu vun
dreng, sem beið í kuldaveðri, ásamt
mörgu fólki eftir því, að konungur-
inn kæmi með fylgdarliði sínu inn
á íþróttavöllinn. Eftir langa bið
sást til skrúðfylkingarinnar. Loksins
kom konungurinn. Mikið var um
að vera. Mikið var skrautið. En —
hver af þessum skrautbúnu Iiöfð-
ingjum skyldi nú vera konungur-
inn? Drengurinn var ekki í efa um
það. Það hlyti að vera stóri, fallegi
maðurinn með gullskúfana á öxl-
unum. Hjá þvi gat ekki farið. Svo
viss þóttist drengurinn í sinni sök,
að hann veitti engum öðrum eftir-
tekt. — Seinna komst þó drengurinn
að því, að konungurinn hafði alls
ekki verið einkenniskæddur. Hann
hafði bví alls ekki veitt kontmgin-
um nokkra eftirtekt. Öll fvrirhöfn-
in. allar stöðurnar úti í kuldanum,
höfðu ekkert haft að Mða. Konung-
inn hafði hann alls ekki séð.
Þegar Tesús fæddist austur á
Gvðino'alandi fvrir meira en 19i/£
öld, höfðu Gvðingar vænzt þess
lengi, að meðal þeirra myndi kon-
ungur fæðast, sem gjöra myndi þá
að voldugri þjóð. Jesúm viður-
kenna þeir ekki sem konung. Hann
fæðist í gripahúsi og elzt upp í húsi
fátækrar móður. Þeim fannst ekk-
ert konunglegt við hann. Þeim fórst
alveg eins og litla drengnum. Að-
eins einn kom auga á mikilleikann í
fátæktinni. Það var Jóhannes skír-
ari, er sagði: „Skóþveng hans er ég
ekki verður að leysa.“ — ,,Hann
kom til eignar sinnar, og hans eigin
menn tóku ekki við honum.“ Það er
sorgarsagan. —
Jesús kemur til eignar sinnar á
hverjum jólum. Hann kemur til
mín og þín. Skyldum vér þekkja
hann, þegar hann kemur til okkar á
þessum jólum? Skyldum við opna
hjörtu okkar fyrir honum eða loka
hann úti? Við vitum ekki hvernig
hann kemur. Hann gefur vel komið
í gerfi fátæks, umkomulítils harns,
sem okkur kann að þykja lítil jóla-
prvði að, en sem hann ætlast til að
við tökum vinsamlega og hjúkrum.
Opnum þvf hjörtun. Hvar sem
hann finnur opin hjörtu, gengur
hann inn. Bióðum hann velkominn
í hvaða gerfi sem hann kemur! —
Hann gefi okkur öllum
GLEÐILEG JÓL!
V.Sn.