Vorið - 01.12.1954, Page 6

Vorið - 01.12.1954, Page 6
124 V O R I Ð okap og slark á sjálfa jólanóttina. Honum fannst það vera svo mikið öfugmæli. Hann var frá bindindis- heimili og hafði aldrei bragðað vín. En hann hafði séð afleiðingar þ'ess og fyririeit það. Bezti félagi hans á skipinu var Gunnar frá Eyri. Þeir voru úr sama þorpi. Gunnar var 18 ára og búinn að vera eitt ár á skipinu. Hann var glaðlyndur og góður félagi, en dá- lítið talhlýðinn og áhrifagjarn. Og meðan hann sat þarna á þilfarinu, kom Gunnar til hans. „Strákarnir eru að búa sig til að fara í land. Eigum við ekki að verða með beim?“ spurði Gunnar. ,,Ég veit ekki. Hvert ætla þeir?“ „Þeir segjast bara fara inn á ein- hvern skemmtistað niður við höfn- ina.“ „Hvað ætla þeir að skemmta sér þar?“ „Ætli beir fái sér ekki ölkollu og eitthvað út í, spjalli saman og horfi á aðra.“ „Þá ætla éo: ekki að vera með.“ „Hvað segirðu. Geiri. Heldurðu, að bú komir ekki með. Dæmalaus mömmudrengur getur bú verið. Þú þorir bó likleo-a að drekka eitt glas af öli, þó að þú sért bindindismað- ur?“ „Ég held bara, að þetta verði ekkert gaman. Veiztu ekki, að það er aðfangadagsksvöld?" „Jú, ég veit það. En hér eru engin hátíðahöld á aðfangadag. Þess vegna getum við vel skemmt okk- ur.“ Eftir nokkurt þref varð það úr, að Geiri lét undan, og ákvað að fara í land með Gunnari. Sólin*var farin að lækka á lofti, þegar þeir fóru í land. Það var mjög heitt og fóru þeir því létt- klæddir. í þessum hópi voru 6 skipverjar. Þeir gengu fyrst um göturnar, skoð- uðu í búðarglugga og keyptu nokkra smáhluti, til að hafa með heim. Mikil umferð var á götunum og margt fólk í búðunum að kaupa til jólanna. Loks komu þeir að stóru og fallegu torgi. Stór tré voru á miðju torginu og alla vega litt blómskrúð í kring. Geiri dáðist að þessari fegurð. Svo komu þeir að kaffihúsi og fóru þar inn. Þarna var skuggsýnt, en ljós héngu á veggjum. Þarna var nærri fullskipað við hvert borð. Og það var sannarlega mislitur lvður, sem þar var saman kominn. — Loftið var þrungið af reykjarstybbu og drykkjarföng voru á hverju borði. Sumir gestirnir voru talsvert háværir, og voru sýnilega eittlivað ölvaðir. Þeir félagar fundu að lokum borð úti í horni. Geiri horfði í kringum sig. Elann hryllti við þessum stað. Hann gat ekki gert sér grein fyrir þeim ömurlegu áhrifum, sem hann varð fyrir. Hér vildi hann ekki vera.

x

Vorið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.