Vorið - 01.12.1954, Síða 7

Vorið - 01.12.1954, Síða 7
VO RIÐ 125 „Heyrðu, Gunnar. Ég ætla heim,“ stundi hann upjr við félaga sinn. „Hvað ertu að segja, drengur. Heldurðu, að þú skemmtir þér ekki með okkur?“ „Nei, þetta er andstyggilegur staður.“ „Strákar, Geiri er of fínn til að skemmta sér með okkur,“ sagði Gunnar og glotti við. „Þú verður aldrei sjómaður, Geiri, ef þú lærir ekki að njóta lífs- ins í landi,“ sagði einn hásetinn. Geiri sagði ekkert, en stóð þegjandi upp, og um leið og hann gekk frá borðinu, sneri hann sér að félögum sínum og sagði: „Hér ætla ég ekki að vera á jóla- nóttina. Verið þið sælir.“ Og Jjar með var hann liorfinn út úr dyrunum. „Það var naumast, að það var gustur á stráknum,“ sagði einn há- setinn. En það var eins og þögn slægi á hópinn við það að vera minntur á, að hin helga jólanótt var að byrja. Því að hún átti einhver ítök í hjörtum þeirra allra. Þeir ætluðu aðeins að gleyma henni að þessu sinni. Geiri hélt beina leið niður í klef- ann sinn á skipinu. Mikill mann- fjöldi var enn á götunum og kvöld- ið var hlýtt og unaðsfagurt. En Geiri sá lítið af þeirri fegurð. í kvöld vildi hann vera einn. Hann mundi allt í einu eftir því, að móðir hans hafði afhent honum böggul áður en hann fór að heiman. Hún hafði sagt, að hann mætti ekki opna hann fyrr en á aðfangadagskvöld. Þegar hann kom niður í klefann sinn, heyrði lrann, að einhver var í næsta klefa. Hann leit þar inn og þar sat Ólafur vélstjóri við borðið og skrifaði bréf. „Hvaðan kemur þú, Geiri minn?“ spurði hann hlýlega. „Ég kem úr landi.“ „Ertu einn?“ ,,Já, hinir urðu eftir." „Hvers vegna komstu á undan þeim?“ „Mér jrótti svo andstyggilegt inni í ölkránni, að ég fór.“ „Það var rétt af þér. Þú ert góður drengur og óspilltur. Það var ekki von, að þú festir þar yndi á sjálfa jólanóttina. Til þess að una á slík- um stöðunr, verða menn að vera þeim samdauna.“ „Hvað ertu að skrifa?" „Ég er að skrifa konunni minni og börnunum. Ég hef það fyrir fasta venju að skrifa þeim á aðfangadags- kvöld, ef ég er ekki heima. Þá er ég hjá þeim í anda á meðan." Þá kom Geira það í hug, að þetta gæti hann gjört líka. Hann gæti skrifað foreldrum sínum. Honum mundi ekki leiðast á meðan. Hann fór aftur inn í klefann, fann böggulinn og tók hann upp. í lionum voru kökur og annað góð- gæti að heiman og Nýja-Testament- ið. Hann gæddi sér á kökunum um

x

Vorið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.