Vorið - 01.12.1954, Síða 11

Vorið - 01.12.1954, Síða 11
V O R I Ð 129 komst aldrei í menntaskólann og varð aldrei reglulega ánægður með lífið. Svo fer oft, þegar dýrustu von- irnar bregðast. Sagt er, að þegar menntaskólapiltarnir komu með skó sína til viðgerðar og sýndu hon- um bækur sínar, þá hafi honum oft vöknað um augu, kysst drenginn sinn í ákafa og setið stundum saman hljóður og hugsandi. — Allar stund- ir, sem hann var ekki að vinnu sinni, notaði hann til að lesa og grufla. Með stéttarbræðrum sínum var hann aldrei. Hins vegar smíðaði hann oft leikföng á kvöldin handa Hansi litla og las fyrir hann, bæði „1001 nótt“ og leikrit Holbergs. Sagt er, að aldrei sæist skósmiður- inn brosa, nema þegar hann las fyr- ir son sinn eða lék við hann. — Oft gengu þeir feðgar út í skóg á sunnu- dagskveldum. Skósmiðurinn tíndi þá blóm handa syni sínum og batt sveiga, þögull og hugsandi. Móðir Hansar Kristjáns var eins og fólk gjörist flest í háttum sínum. í uppeldinu hafði hún mest af hörkunni að segja. Með harðri hendi var hún rekin áfram við vinn- una eða þá út til að betla. Það tók hún mjög nærri sér. Hún sagði seinna sjálf frá því, að oft hefði hún falið sig í ræsi einu og legið þar all- an daginn grátandi, frekar en að ganga fyrir hvers manns dyr og biðja að gefa sér. Með aldrinum varð hún framkvæmdalítil og skeyt- ingarlaus, en alltaf jafn góðlynd og góð í sér. Við skulum þá snöggvast skyggn- ast um heima hjá Hansi litla. — Hjónin bjuggu, eins og áður er sagt, í einni stofu. Þar var skóverk- stæðið og þar var hjónarúmið og H. C. Andersen. bekkurinn, sem Hans svaf á. Bekk- urinn var færður að rúminu á kveldin. Nokkrar myndir héngu á veggjunum, og lítil 'bókahilla var yfir kommóðu ömmu lians. Eidhús- kompu höfðu foreldrar hans og voru dyr milli hennar og stofunnar. Hurðin var máluð á óvenjulegan hátt. Á spjöldin voru nefnilega mál- aðar landslagsnryndir, og fannst drengnum mikið til um fegurð

x

Vorið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.