Vorið - 01.12.1954, Blaðsíða 12

Vorið - 01.12.1954, Blaðsíða 12
130 V O R I Ð þeirra. Úr eldhúsinu var stigi upp á loftið og við þakrennuna var fest- ur dálítill kassi, fullur af mold. Þar ræktuðu hjónin lauka og persillur. Þetta var akurinn þeirra. Á þessu heimili ólst skáldið H. C. Andersen upp. Þar dreymdi hann alla l júfustu bernskudrauma sína. — En nú skulum við rifja upp nokkrar bernskuminningar hans. Einhver fyrsta minning hans er bundin við tugthúsið í Odense. Það var ekki iangt frá heimili hans. Hvert sinn, er hann leit tugthúsið, flugu honum í hug allar verstu ræningja- og morðsögurnar, sem hann hafði heyrt. Stundum stóð hann langa'tímana eins og niður negldur og hlustaði á söng fang- anna, er þeir rauluðu við verk sitt, sér til dægrastyttingar. Ekki batn- aði sagan við það, að einu sinni bauð fangavörðurinn honum og foreldrum hans til sín í tuqthúsið. Honum rann kalt vatn milli skinns og hörunds, þeqar hin stóra, járn- sleqna hurð onnaðist og lokaðist að haki þeim. Tveir fanganna gengu um beina, og þá versnaði Hansi hræðslan fyrir alvöru. Hann gat engan bita bragðað. Hann varð að leggjast fyrir — af tómri hræðslu! Sá, sem feginn varð. þegar heim- sókninni lauk og heim var komið, var Hans litli. En angistin í tugt- húsinu gleymdist honum ekki um sinn. Annað hús í borginni gaf honum líka nóg að hugsa, en það var geð- veikrahælið. Amma hans vann þar oft í garðinum og kom hann oft- sinnis til hennar. Stundum komu sjúklingarnir út í garðinn til þeirra. Drengurinn varð þá afar-hræddur, en forvitnin hélt honum föstum. Það var í aðra röndina nokkuð gam- an að hlusta á skvaldrið í þeim. Og svo sungu sumir þeirra nokkuð skemmtilega. — Meðal þessara sjúklinga var afi hans. Við hann var drengurinn hræddastur. — Afi hans skar alls konar einkennilegar myndir úr tré, — menn með dýra- höfðum, ferfætt dýr með vængjum og merkilega fugla. Þessir smíðis- gripir karlsins voru sendir út í sveitina og seldir fvrir mat. Peninga vildi karlinn ekki sjá. — Einu sinni bar svo við, að karlinn slapp út á götur borgarinnar og hópur af götustrákum safnaðist um karlves- alinginn með ópum og óhljóðum. Þá varð Hans svo hræddur, að hann fól sig bak við tröppur, og þar var hann meðan hann heyrði til strák- anna. iÞriðja húsið kom mjög við sögu skáldsins H. C. Andersens. Það var vinnustofa gamalla, fátækra kvenna. Rerlingarnar höfðu mestu mætur á Hansi og hann á þeim. Við þær var hann óhræddur. — ,,Svona hágáfað barn lifir varla Iengi,“ sögðu þær, þegar Hans hafði lokið fyrirlestrum sínum, — því að nú var hann farinn að flytja rokna

x

Vorið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.