Vorið - 01.12.1954, Page 14

Vorið - 01.12.1954, Page 14
132 V O R I Ð urinn saknaði föður síns innilega, sérstaklega þó sem leikfélaga. Um þessar mundir sá Hans litli sjónleik í fyrsta sinni. Leikhúsið og allt, sem stóð í sambandi við það, varð nú hans mesta áhugaefni. Nú fór hann að læra heil leikrit utan að og láta brúðurnar sínar leika þau, en auðvitað varð hann sjálfur að tala fyrir þær allar. Eins þurfti hann að flytja þær til á leiksviðinu, en leikhúsið Jiafði faðir hans sálaði smíðað og gefið honum fyrir nokkru. Nú kom að því, að hann vantaði leikrit, en hann dó ekki ráðalaus. Hann bjó þau til sjálfur, og sannarlega datt honum margt í hug. Því til sönnunar má nefna, að nöfn á 25 leikritum skrifaði hann aftan á eina bókina sína. Þessi 25 leikrit ætlaði hann að semja og hef- ur vísast samið. En barnaskólinn varð oft að sitja á hakanum. Hann mátti ekki vera að því, að sinna lexíum hans. Leikhúsið tók allan tíma hans. Annars lærði hann vel að lesa og skrifa, en minni varð reiknirmkunnáttan. Og vinnu- brö<?ð lærði hann fá sem engin. Mömmu hans srazt lítt að þvf. Hann var kominn á bann aldur, að hann átti að fara að sreta létt undir við heimílísstörfin, en af því varð frem- urlítið. Hér með lýkur þessari frásögn. y. Sn, Bréfaviðskipti Óskum eftir bréfaskiptum við jafnaldra: 1. Sigurgeir B. Guðmundsson (11— 14), Auðsstöðum, Hálsasveit, Borgarf. 2. Tryggvi Jónsson (8—10), Garðs- vík, Svalbarðsströnd, S.-Þing. 3. Margrét H. Jónsdóttir (13—15) Garðsvík, Svalbarðsstr., S.Þing. 4. Ásta Magnúsdóttir (12—14), Hólmatungu, Jökulsárhlíð, N.- Múl. 5-Ingibjörg Haraldsdóttir (11^-13), Víðihvammi 11, Kópavogi. Læknirinn: „Hvernig gengur það með svefninn?" Sjúklingurinn: „O, það er mikið að skána, læknir. Hingað til hef ég alltaf orðið að telja upp að 10.000, en í gær- kveldi komst ég af með 9.987.“ Kennarinn: „Getur þú nefnt fugl, sem ekki er lengur til?“ Halli: „Já, snjótittlinginn.“ Kennarinn: „Hvaða rugl er í þér, drengur?“ Halli: „Jú, kötturinn drap hann í gær.“ Kennarinn: „Getur þú nefnt mér þekktan kaupstað á íslandi, sem byrj- ar á S?“ Árni: „Já, Eskifjörður." \

x

Vorið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.