Vorið - 01.12.1954, Side 23
VORIÐ
141
„Já,“ svaraði Haraldur hátt og
greinilega.
„Hverjir voru aðrir með?“
„Ég svara aðeins fyrir sjálfan
mig.“
„Þú ert frekjudallur. Viltu svara
kurteislega, — hverjir voru með?“
Það var dauðaþögn í bekknum.
Þá stóð Hartvig upp og svaraði:
„Ég var með.“
„Ég líka.“ Svörin komu hvert á
eftir öðru. Bara veslings Símon
þagði og var alveg grænn í framan
af hræðslu.
„Voru allir með, nema Símon?“
spurði kennarinn stranglega.
Það var þögn í stofunni, en svo
brast Símon í grát og sagði:
„Það var ég, sem braut rúðuna,“
sagði hann snöktandi:
„Þú?“ Kennarinn leit á Harad.
„Mér fannst þú segjast hafa gert
það,“ sagði liann.
„Já, það vorum við báðir. Ég
kastaði fyrst, en Símon var óheppn-
ari, og það er ég, sem er skyldur að
borga.“
„Við greiðum það í félagi," sagði
Hartvig. „Við erum allir sekir, og
eigum allir að greiða það.“
Símon skalf af ótta, þegar hann
leit í kringum sig í bekknum. „Ég
get þó lagt til það, sem ég á,“ sagði
hann. „Ég var svo hræddur, af því
að ég átti ekki nóg.“
Kennarinn safnaði saman pen-
tngunum hjá drengjunum, og skrif-
aði Maðs stutt bréf, sem allir dreng-
irnir skrifuðu undir. — „Og þar
með er þetta mál úr sögunni,“ sagði
hann. „En það vil ég segja ykkur að
lokum, að í dag hafið þið verið til
sóma fyrir foreldra ykkar, og þið
hafið líka glatt gamla kennarann
ykkar.
Standið á fætur, biðjið faðirvor,
verið sæl og heilsið heim til ykkar
og flytjið beztu nýársóskir."
Upp veginn frá skólanum hljóp
drengjahópur og borðaði nestið sitt
á leiðinni. Þeir voru allt í einu
orðnir svo svangir.
En svo fóru þeir að hugsa um
hve reiður kennarinn hafi verið,
þegar hann byrjaði á yfirheyrsl-
unni. „Hann var svo reiður, að
þunnu hárin á höfði hans stóðu
beint upp í loftið," sagði Hartvig.
„En gamli kennarinn gerði nú
samt vel,“ mælti Haraldur, „og við
megum vera honum þakklátir fyrir
að liann tók að sér að tala við
Maðs,“ bætti hann við um leið og
hann hljóp upp götuna heim til sín.
„Góðu jól, heilögu jól,“ raulaði
hann, þegar hann kom inn í stof-
una. — „Ég er svo hungraður," kall-
aði hann ákafur.
„Jæja, það er laglegt að heyra,“
sagði móðir hans og brosti.
(E. S. þýddi).