Vorið - 01.12.1954, Blaðsíða 24
142
VO RIÐ
Ef ég væri guð
um jólin
Ef ég væri guð um jólin
— en ég er bara maður —
ég dræpi á dyr hjá öllum
svo dýrlega himinglaður.
Ég harðstjórans snerti hjarta
og hlýjaði það og mýkti,
og sál hans með sólskinsvendi
ég sópaði unz ljós þar ríkti.
Ef ég væri guð um jólin
— en ég er bara maður —
þá brosti ég hverju barni
svo barnslega himinglaður,
ég vefði þau öll í einu
að ástríku móðurhjarta,
með sólskin frá sálu minni
ég sál þeirra gerði bjarta.
Ef ég væri guð um jólin
— en ég er bara maður —
þá kyssti ég heitum kossi
svo klökknandi himinglaður
þau stráin, sem bogin stríða
við storminn í veikleik sínum
ég byrgði þau öll í eining
um eilífð í faðmi mínum.
Ef ég væri guð um jólin
— en ég er bara maður —
þá vefði ég líknarvængjum
svo viknandi himinglaður
hvert einasta líf, sem líður
og leitar að gæfu sinni
á væng eða völtum fæti
og villist á fótskör minni.
Ef ég væri guð um jólin
— en ég er bara maður —
þá léti ég lengjast jólin
svo lifandi himinglaður.
Ég léti þeim aldrei linna
með líknandi krafti sínum,
og velkomið allt, sem veikt er
til vistar í himni mínum.
Ef væri.ég guð um jólin
— en ég er bara maður. —
Sigurður Júl. Jóhannesson.