Vorið - 01.12.1954, Qupperneq 25

Vorið - 01.12.1954, Qupperneq 25
V O R I Ð 143 Þegar litlu tröllin sigruðu Ævintýri eftir GUN GYLLENSPETZ. í skóginum voru bæði stór tröll og lítil, en þeim kom ekki saman. Litlu tröllin voru fjörug og starf- söm, en það líkaði stóru tröllunum ekki. „Við verðum að láta þau kenna á því. og sýna hvað við get- um. Þetta er ófært eins og það er. Svona píslar eiga ekki að flækjast fyrir okkur. Svo eru þau með nefið alls staðar. Sé þeim ógnað, þá leggja þau á flótta. Svo stríða þau okkur. Nei, þetta þarf að liafa einhvern endi.“ Þetta kom öllum stóru tröllunum saman um, og nú skyldi látið til skarar skríða. Litlu tröllin skyldu fá að vita, að það væru stóru tröllin, sem ættu skóginn. Litlu tröllin mættu að vísu búa þar, en helzt ekki meira. Þau ættu að sýna stóru tröllunum til- hlýðilega virðingu. Taka ofan og hneigja sig, en ekki haga sér eins og þau gjörðu nú, kalla abrakadaba eða einhverja aðra vitleysu. „Við stofnum til verðlaunamóts," sagði stóri Klumpur. Hann var svo hár að höfuðið náði alveg upp á móts við grenitoppana, og svo gild- ur, að hann varð að smeygja sér á röð g:e2:num hellismunnann. ,,Það skulum við gjöra,“ sögðu hin stóru tröllin, ,,og svo sigrum við. Við skulum hafa há verðlaun, því að við erum viss með að sigra.“ Svo kom þeim saman um að láta fyrst svara spurningum. Með því vaéri hægt að vita, hvort litlu tröllin eða þau stóru væru vitrari. Á eftir gætu þau farið í ,,krók“. Með því var hægt að sjá, hvor væru sterk- ari. Þau skrifuðu auglýsingu og festu Iiana upp í skóginum. í auglýsing- unni stóð, að öllum væri heimil þátttaka. Það áttu að vera tvær rniklar verðlaunaþrautir og verð- launin áttu að vera tvær skeppur af gulli. Margt fleira var til skemmt- unar: Kaffidrykkja, skotfimi, hljóm- leikar og dans. Þá yrði nú skemmti- legt í skóginum. „Hvað er þarna?“ og litlu tröllin Ijentu á auglýsinguna. Eitt af litlu tröllunum hoppaði upp á þúfu og þar las það: „Mikið verðlaunamót í skóginum! stendur þar.“ „Stóru tröllin efna til' verðlauna- samkeppni," sagði það, „tvær verð- launaþrautir. Það veltur á því, hvort þau eða við erum vitrari. Og svo hvort við eða þau eru sterkari. Tveim skeppum af gulli er lofað í

x

Vorið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.