Vorið - 01.12.1954, Blaðsíða 31
V O R I Ð
149
Ur keimi barnanna
Þættir úr Noregsför Barnakórs Akureyrar.
f ÁLASUNDI.
Loksins, loksins lagði lestin af
stað til Álasunds. Við vorum orðin
heldur óþolinmóð að bíða, því að
þetta var í fyrsta skipti á ævinni,
sem við sáum slíkt farartæki. Hvað
þá að eiga að fara að ferðast með
því. Svo að það má nú nærri geta,
hvort við höfum ekki verið spennt.
Við áttum langa ferð fyrir hönd-
um, rúma 13 tima í iárnbrautarlest
og bíl. F.n bað srerði ni'i ekkert til,
þvi að við ferðuðumst að nóttu til
og höfðum fína svefnklefa. Ég held
að við höfum b'ka öll sofið vel,
nema einn strákur, sem var að
drepast úr tannpínu alla nóttina.
Næsta morgun kl. rúmlega sex
komum við til Ándalsnes. Þar tóku
á móti okkur nokkrir fulltrúar frá
Álasundi. Söngstjórinn okkar,
Björgvin Jörgensson, fékk blóm-
vönd. Síðan var okkur boðinn
morgunverður. Áður en við fórum
frá Ándalsnesi var hverjum manni
afhent umslag, sem hafði að geyma:
fallega myndabók frá Álasundi,
bók um fiskiiðnsýninguna, að-
göngumiða að allri sýningunni,
miða, sem veitti okkur ókeypis far
með öllum strætisvögnum bæj-
arins, og 10 kr. í vasapeninga. Svo
var lagt af stað með tveimur stór-
um vögnum til Álasunds. Við vor-
um tæpa 4 tíma á leiðinni. Þegar til
Álasunds kom,ókum við beint heim
í Möre ungdomsskole. Þar áttu flest
okkar að búa. Um leið og við stig-
um út úr bílunum, heilsaði fjöl-
menn, norsk drengjahljómsveit