Vorið - 01.12.1954, Qupperneq 33

Vorið - 01.12.1954, Qupperneq 33
VO RIÐ 151 Fyrsti rjómaísinn í Osló. 17. JÚNÍ í ÁLASUNDI. 17. júní var dásamlegasti dagur- inn í allri Noregsferðinni. Hann var bjartasti og heitasti sólskinsdag- urinn á öllu sumrinu, (hitinn 28 stig) og svo var þetta verulega há- tíðlegur þjóðhátíðardagur. Allur bærinn var fánum skreyttur eins og allir í Álasundi vildu óska okkur til hamingju með 10 ára afmæli lýð- veldisins. Kl. 12 gengum við til fundar við íslenzka konsúlinn uppi á Fjell- stua, klædd okkar bezta skarti og með fánann í fararbroddi. Konurn- ar voru í íslenzkum þjóðbúningum. Þar minntist konsúllinn íslands, en við sungum þjóðsönginn og heils- uðum með fánakveðju. er íslenzki fáninn var dreginn að hún á Fjell- stua, sem gnæfir mörg hundruð metra yfir borgina. Síðan nutum við góðra veitinga hjá ræðismanns- hjónunum. Söngur okkar og viðtal við fararstjórann og kveðja frá okk- ur heim var tekin upp fyrir útvarp, en því miður heyrðist það víst aldr- ei hér. Að lokum sagði konsúllinn okkur sögu Álasunds og nefndi okkur örnefni þeirra staða, sem sá- ust frá Axla. Kl. 6 bauð Karlakór Álasunds okkur í kveðjuhóf, sem haldið var á undurfagurri eyju skammt frá Álasundi. Við fórum þangað á all- stórri ferju. Var lagst að bryggju í lítilli vík á eynni. Rétt fyrir ofan var hús, sem nefnt er Sejlerhvtten, þangað var ferðinni heitið. Húsið var rautt bjálkahús með svölum allt um kring. Þar var íslenzki fáninn við hún til heiðurs okkur íslending- unum á þjóðhátíðardegi okkar. Húsið er eins og rauð rós í skógin- um, sem vex um alla eyna. Fyrst fórum við í leiki úti í skóginum og

x

Vorið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.