Vorið - 01.12.1954, Page 37

Vorið - 01.12.1954, Page 37
V O R I Ð 155 heyið bíður þess að verða gefið á garðann. Grasið er farið að sölna, og gulbleikum haustblæ slær á tún og engi, holt og hæðir. Trén fella blöðin smátt oar smátt os: fuarlaklið- o o o urinn deyr út með stormum hausts- ins. Farfuglarnir fara, en íslenzku staðfuglarnir verða eftir. Þá fara hrafnarnir að halda þingin sín og skipta sér niður á bæina. En rjúp- urnar klæðast vetrarfiðri og tína rjúpnalauf um holt og hæðir. Einn helzti og skemmtilegasti Jiáttur haustsins, kannske sá, sem flestar minningar eru tengdar við, eru göngurnar. Þá sækja ungir og gamlir fé sitt á fjall ,og lörnbin. sem um vorið voru svo lítil, eru nú orð- in stór og falleg. Þegar farið er í göngur, Joarf oft langt inn á öræfi að leita fjárins. Þess vegna voru menn stundum 2—3, eða jafnvel fleiri daga á leiðinni. Þá var oft ákveðið að fara einhverja vissa vegalengd á dag, t. d. að bæ eða örnefni. Mjög var algengt að gíangnamenn gistu í hlöðum, Jjví að ekki voru t. d. görnlu torfbæirnir svo stórir að þeir rúmuðu fjölmennan gangnamanna- hóp. í göngunum er þörf á góðum og viljugum gæðingum, því að ekki er gott að það séu þreklitlir eða brjóst- veikir hestar, sem nota á í göngur. Eitt helzta- starf íslenzkra hunda hefur líka oft verið að fara með í göngurnar og hjálpa til við smölun fjárins. Á leiðinni er oft áð, hestum og hundum er brynnt og mennirnir hyggja í malpokana og fá sér bita. Þegar kvöld er komið, er komið á áfangastaðinn. Þá hafa menn nóg að gera. Það er tjaldað og tíndur eldi- viður og margt fleira. Þegar búið er að tjalda er kveikt undir katlinum, vatn er hitað og menn fá sér matar- bita og kaffisopa. Síðan er oftast farið að sofa, en menn skiptast á um að gæta hestanna. í dögun næsta morgun er svo risið úr rekkju, og ýmist haldið áfram eða farið að leita. Þá skiptir gangna- foringinn mönnunum í flokka, sem leita skulu að fénu. Þegar öllu fé, sem fundizt hefur, hefur verið safn- að saman í einn hóp, er haldið heim á leið, en kindum, sem á leiðinni finnast, er bætt í reksturinn. Svona Jjokast frjálslegt og fallegt féð heim. Loks er göngunum lokið og safn- ið er rekið inn í réttina. í kringum réttina iðar allt af fólki. Þar eru börn og fullorðnir, sem langar til að sjá kindina sína, sem komin er af fjalli. Skólarnir kalla á börn og ung- linga til náms, og brátt er haustið liðið og veturinn genginn í garð. Hjörtur Pálsson.

x

Vorið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.