Vorið - 01.12.1954, Side 38
156
V O RIÐ
Getur þú leikið þessar listir?
Sumir menn hafa svo mjúkan og
sveigjanlegan líkama, að þeir líkj-
ast einna helzt slöngum. Þeir geta
gert hinar ótrúlegustu sveigjur og
beygjur. Kannske þú sért einn af
þeim, sem getur leikið slíkar listir
þér sjálfum til gamans og kunningj-
um þínum? Hér eru nokkrar mýkt-
aræfingar, og aðrar þrautir:
1. Settu báða lófana á gólfið, styð
olnbogunum á knén og reyndu
svo að taka vasaklút upp af gólf-
inu með munninum.
2. Klóraðu þér á hægri úlnlið með
hægri þumalfingri.
3. Klappaðu þér á höfuðið með
annarri hendinni og dragðu
hring á magann á þér á sama
tíma með hinni.
4. Skrifaðu nafnið þitt á pappír,
sem þú heldur á enni þínu.
5. Snúðu þér í hring fimm sinnum
og reyndu svo að ganga beint
áfram án þess að reika.
6. Krjúptu á annað knéð, svo að all-
ur þungi líkamans hvíli á því, og
reyndu svo að þræða nál.
7. Taktu staf eða kústskaft með
báðum höndum og reyndu svo að
hoppa yfir það.
8. Leggstu á bakið, krosslegg hand-
leggina á brjóstinu og reyndu svo
að standa upp, án þess að taka
handleggina úr þeim stellingum.
9. Styð bakinu að vegg og haltu
hælunum fast að veggnum.
reyndu svo að taka upp greiðu
eða eittlrvað annað, án þess að
hreyfa hælana frá veggnum.
DÆGRADVÖL
1. Eftir hvern er þessi vísa:
Þar rís Drangey úr djúpi,
dunar af fuglasöng
bjargið, og báðum megin
beljandi hvala þröng.
2. Hvað hét önnur ljóðabók Stef-
áns frá Hvítadal?
3. Við hvaða foss er gamla Sogs-
virkjunin?
4. Hvaða stórt stöðuvatn er suður
af Húnavatnssýslu?
5. Frá hvaða landi er fram-
kvæmdastjóri Sameinuðu þjóð-
anna?
6. í hviaða íslendingasögu er sagt
frá Ingimundi gamla?
7. Hvaða skólasetur fyrir pilta og
stúlkur er á Fljótsdalshéraði?
8. Hvað hét systir Ólafs Trvggva-
sonar, sem var vinkona Kjartans
Ólafssonar?
9. í hvaða kaupstað var Valdimar
V. Snævarr lengst skólastjóri?
10. Hver er merkasta áin í Egypta-
landi?
Fyrstu stafirnir í svörunum við
þessum spurningum rnynda heiti á
algengum persónum úr heimi þjóð-
sagnanna. Hver eru svörin og hvert
er persónuheitið?