Vorið - 01.12.1954, Qupperneq 39

Vorið - 01.12.1954, Qupperneq 39
V O R I Ð 157 JÓLALEIKIR Stokkaþraut. Gestunum er skipt í tvo ]afna hópa. Hver hópur raðar sér hlið við hið — flokkarnir snúa andlitum saman. Þeir, sem eru á enda (einn úr hverjum flokki) setja hulstur af eldspýtnastokk upp á nefið á sér. Svo er talið: 1—2—3 — og báðir byrja og reyna að koma hulstrinu á nef þess næsta, án þess að snerta það með höndunum, og svo koll af kolli. Sú röðin vinnur, sem fyrst kemur hulstrinu á endann. Ef hulstrið dettur á gólfið áður en það er komið á næsta nef, verður sá, sem missti að taka það upp, setja á sitt eigið nef og reyna aftur. Ýmsar stell- ingar í þessum leik munu vekja mikinn hlátur! Hver syngur? Bundið er fyrir augu eins þátttak- 'anda, og hann látinn sitja í sófan- um. síðan kemur einn og einn í einu, setzt hjá þeim ,,blinda“ og »,tekur lagið“. Sá ,,blindi“ á að þekkja þann, sem söng. Þegar hon- tim hefur tekizt það, tekur sá sem söng við o. s. frv. Ekki er nauðsyn- leort að syngja nema örlítið — en sá >,blindi“ má biðja um lagið aftur. Þetta er miklu skemmtilegra en þú heldur! Veiðimenn og hundar. Gestunum er skipt í tvo jafna hópa. Foringi hvers hóps er „veiði- maður“, allir hinir eru „hundar“. Áður en leikurinn hefst, hefur einhver, sem ekki tekur þátt í leiknum, falið ca. 30—40 baunir hingað og þangað um þær vistar- verur, sem boðið fer fram í, og er skýrt frá því í upphafi. Sjást verður á baunirnar. Hvor „veiðimann- anna" hefur smá í-lát í hendi — bolla eða skál. Svo er talið: Allir viðbúnir, 1—2—3 og leikurinn hefst. Nú má enginn segja orð, en „hund- arnir" leita að baununum og gefa „veiðimanni" sínum til kynna hvar þær eru með gelti. Kemur þá „veiðimaðurinn" hlaupandi og set- ur baunina í skálina sína. Tnnan stundar eru allir farnir að gelta og verður úr því mikil skemmtun. — iÞegar annar hvor „veiðimannanna" hefur fengið meira en helming hinna földu bauna í skál sfna, má han kalla upp: Unnið! og fá þá „hundarnir" málið aftur!

x

Vorið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.