Vorið - 01.09.1967, Side 5

Vorið - 01.09.1967, Side 5
Með söknuði ég kvaddi hinn söngrika skóg, bó sólin til vesturs var gengin. Og voldug hún dýrðlega draumblæju óf um dalsfjöllin hóu og cngin. Af hciðinni björtu ég horfði um stund yfir hýran og svipfriðan dalinn. Þó só ég við blasa hinn litauðga lund, löngun var hugur minn kvalinn. STEINI LEIKARI Börnin í Löngugötu eru býsna mörg, og ekki dettur mér í hug að reyna að segja frá þeim öllum. Þess vegna ætla ég bara að kynna fyrir ykkur nokkur þeirra. Við fáum þá fyrst og fremst að kynnast lionum Steina, sem býr í númer 14. Hann er tíu ára. Beint á móti er hús- ið númer 7, og þar eiga tvíburasyst- Urnar Hulda og Kristín heima. Þær eru níu ára og svo líkar, að enginn nenia hannski mamma þeirra þekkir þær í sundur. Svo er að nefna hann Danna, sem býr í númer 5. Hann og Steini eru miklir vinir og leika sér oft saman. Danni er ellefu ára. Ekki megum við gleyma henni Einnu litlu systur Steina, mesta fjör- hálfinum í hópnum. Hún hefur ekki lif- að nema fimm ár, en er þó furðulega veraldarvön. Yngsti fulltrúinn í hópnum er hann Siggi. Hann er fjögurra ára, en hráðum fimm eins og liann er vanur að segja. Siggi á heima í númer 10. Hann er nú talsvert óþekkur, drengurinn, og þið eigið sjálfsagt eftir að sannfærast um En svo þcgar eygði ég Súlunnar tind, og sólgljóðan, lognsléttan fjörðinn, blasti við fögur og fullkomin mynd, þau föðmuðust, hafið og jörðin. Langt út i firði sóst Hríseyjan hó, hjúpuð í blóleita móðu. Og borgin á ströndinni blasti við þó, þar byggingar hóreistar glóðu. það, ef þið lesið söguna. Við skulum byrja að fylgjast með þessum krökkum, þar sem þau leika sér á túnblettinum við hús númer 14, ásamt mörgum öðrum stúlkum og drengjum úr götunni. Það er sunnudagur og nýbúið að horða hádegismatinn. Börnin hafa verið að hlaupa í skarðið, en eru nú orðin leið á þeim leik og flatmaga í grasinu. Allt í einu gellur í Finnu litlu: Steini, viltu syngja fyrir okkur núna? Já, viltu syngja, segja öll bömin og mæna á Steina. Hann er nefnilega mesti danslagasöngvari í allri götunni — og reyndar sá bezti á öllu landinu, finnst sumum þeirra. Viltu syngja — viltu syngja? segir Steini, og hermir eftir bömunum. Ég syng ekki neitt. Æi jú, gerðu það, kveina þau. Viltu kannski frekar herma eftir kennara? Ja, það gæti ég nú kannski, segir Steini og klifrar upp á öskutunnuna. Hún er hans kennaraborð, söngpallur og ræðustóll. VORIÐ 99

x

Vorið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.