Vorið - 01.09.1967, Qupperneq 6

Vorið - 01.09.1967, Qupperneq 6
Steini sperrir sig og fettir, ræskir sig því næst nokkrum sinnum og spennir greipar um magakríliö. Jæja, krakkar mínir. Við' skulum nú sjá. Ilvað ég vildi segja? Ertu búinn að gleyma því? kalla krakkarnir strícfnislega. Nei, nei, nei. Nú hef ég þaö, segir Steini og bendir meö vísifingri á krakka- ‘hópinn. — Hvað eru margar tennur í Ij óninu ? Tvær, gellur í Badda. Hvaö er að heyra — hvað er að heyra? Helduröu aö ljónið hafi bara tvær tennur? Já, það fékk t.annpínu og lét draga úr sér. Jæja, jæja, það má vel vera. En vild- uð þið nú gjöra svo vel að fara með þrisvar sinnum töfluna? Börnin þylja hana reiprennandi, en á meðan þykist Steini taka ofan gleraugu og fægja þau, og láta upp aftur. Því næst fettir hann höfuðið aftur á bak, svo að nefið veit næstum beint upp í loftið. Vertu prestur, kallar Finna. Börnin mín, byrjar Steini, og verður allt í éinu ákaflega hátíðlegur í rómnum. Þið eigið alltaf að vera þæg og góð •— og megið aldrei segja ljótt, og aldrei gleyma að lesa námsbækurnar ykkar, nema þær séu mjög leiðinlegar — Am- en. Vertu eins og karlarnir, sem stundum eru að rífast í útvarpinu, biður önnur tvíburasystirin. Ég segi það enn og aftur, að Fram- sóknarflokkurinn er versti flokkur í heimi, segir Steini með hárri og frekju- legri röddu. Hann er bara alveg kol- 100 VORIÐ ómögulegur og ætti að senda alla karl- ana í honum út á togara. Nú breytir Steini um rödd og segir: Þá er nú Sj álfstæðisflokkurinn verri — svoleiðis gjörónýtur, og gerir ekki annað en að flækjast fyrir, þegar aðrir eru að vinna. En nú skulum við ekki rífast meira, heldur taka lagið — og Steini syngur: „Vertu ekki að horfa svona alltaf á mig ef þú meinar ekki neitt með því.“ Og öll börnin taka undir og syngja: „Ef þú meinar ekki neitt með því.“ Steini stjórnar söngnum þarna af öskutunnunni góða stund. Hann sveigir sig og teygir, fettir sig og brettir og blán- ar í framan, þegar hann syngur hæstu tónana. Steini hefur mjög háa og hljóm- mikla rödd og lagviss er hann. Nú verður þú einu sinni kerling, seg- ir Danni, hleypur inn til mömmu sinnar og fær lánaðan gamlan, skræpóttan kjól og mjög einkennilegan hatt með löngu slöri. Það er nú sjón að sjá Steina, þegar ’hann er kominn í þennan skrúða. Börnin veltast um af hlátri, þegar Steini vaggar sér í mjöðmunum og seg- ir skrækróma: Nú skulum við öll syngja af lífi og sál — og Steini byrjar: „Senn kemur vorið á vængjum yfir flóann.“ Skrækirnir í Steina heyrast í mörgum húsum í nágrenninu. Hann hefur svo af-

x

Vorið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.