Vorið - 01.09.1967, Síða 13

Vorið - 01.09.1967, Síða 13
STÖÐVIÐ ÞJÓFINN eftir knut muhrer Gunnar og Þór lentu dag einn í hörku- deilum út af því hvort dýrin gætu hugs- aS. Gunnar 'hélt því fram, aö þau gætu þaÖ, en Þór var alveg ú gagnstæðri skoðun. Hvorugur gat þó sannað mál sitt, en báðir héldu þeir þó fast við sína skoð- un og létu hvergi bifast frá henni. Deil- an leystist því á engan hátt að þessu sinni. En þá gerðist atburður, sem kom Þór til að breyta skoðun sinni. Og verður nú skýrt frá þeim atburði. Það tók af allan efa um það, að dýrin geta hugsað. A heimili Þórs var stór skógarköttur, sem hafði tekið sér þar bólfestu. Hann var kallaður Baldur. Það var eiginlega hann, sem deilan hafði staðið um upp- haflega. Gunnar hélt því fram, að það væri alveg sérstaklega viturt dýr, en Þór sagði, að hann hefði ekki meira vit en trédrumbur. Baldur lá oftast og svaf á teppi hjá ofninum í stofunni. Þar hafði hann haft fast aðsetur, síðan liann kom á þetta heimili. Á kvöldin fékk hann sér göngu- ferðir um nágrennið, en hann var aldrei svo lengi úti, að hann kæmi of seint heim. Þegar útidyrunum var lokað á kvöldin, var Baldur alltaf kominn á sinn stað. Þetta umrædda kvöld var Baldur einn- ig kominn áður en húsinu var læst og fólkið hafði gengið til náða. Nú er bezt að segja það eins og það er, að Baldur var ekki sérlega uppnæm- ur fyrir hljóðum og hávaða, og það þurfti nokkuð til, að hann vaknaði, þegar hann var sofnaður á annað borð. Og ef hann hefði ekki verið vakinn ó- venjulega harkalega þessa nótt, hefði hann væntanlega ekki vaknað frekar venju. Og þá hefði margt farið öðru- vísi. VORIÐ 107

x

Vorið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.