Vorið - 01.09.1967, Page 20
iimanlandsflugflotans var þá orðin að-
kallandi, og fylgdust Flugfélagsmenn ná-
ið með nýjum gerðum flugvéla, sem þá
komu á markaðinn eða voru væntanleg-
ar. Eftir ítarlegar athuganir, varð að
ráði, að keyptar voru flugvélar af gerð-
inni Fokker Friendship. Þót-t hér væri
um nýja gerð flugvéla að ræða fyrir
Flugfélagsmenn, voru þeim þó þessar
vélar ekki að öllu ókunnar. Bæði var,
að mikið hafði frétzt frá öðrum lönd-
um, þar sem þær flugu þá þegar á mörg-
um flugleiðum og reyndust vel, svo og,
að hreyflar þessara véla voru af gerð-
inni Rolls-Royce Dart, en það er sama
gerð hreyfla og er í Viscount-flugvélun-
um.
Fyrsta Fokker Friendship flugvél ís-
lendinga kom til landsins í maí 1965
og hlaut nafnið Blikfaxi. Onnur kom til
landsins ári síðar og hlaut nafnið Snar-
faxi, og nú á Flugfélag íslands í pönt-
un þriðju flugvélina af Fokker Friend-
shipgerð og er hún væntanleg i marz
1963.
Arið 1965 hófust fyrir alvöru athug-
anir á því, hvaða flugvélategund myndi
henta félaginu bezt til millilandaflugs, en
fyrirsj áanlegt var, að endurnýja þyrfti
flugflotann ekki síðar en árið 1967. —-
Skipaðar voru nefndir starfsmanna til
rannsókna á þessum málum. Þær rann-
sóknir stóðu yfir í rúmt ár, og voru mjög
yfirgripsmiklar. — Rannsakaðar voru
tæknilegar, rekstrarlegar, fj árhagslegar
og flugtæknilegar hliðar þessara mála.
Aðeins eitt atriði lá ljóst fyrir í byrjun:
að flugvél sú, sem keypt yrði, og þá
væntanlega fleiri síðar, yrði af fullkomn-
ustu fáanlegri gerð.
Niðurstöður þessara rannsókna og
athugana urðu einróma þær, að þotur
af gerðinni Boeing-727 hentuðu aðstæð-
um okkar íslendinga bezt, og væru hag-
stæðastar á flugleiðir Flugfélags Islands
milli landa. Kaup á einni slíkri vél voru
litlu flugfélagi stórt átak. Kaupverð vél-
arinnar ásamt varahlutum og þjálfun
flugliða er nokkuð yfir 300 milljónir ís-
lenzkra króna. Með góðri aðstoð Alþing-
is, ríkisstj órnar og innlendra peninga-
stofnana, svo og peningastofnana er-
lendis, og síðast en ekki sízt með góðri
fyrirgreiðslu og velvilja Boeing-verk-
smiðjanna, sem framleiða þoturnar, tók-
ust þessi kaup.
Hinn stóri dagur, er Flugfélag íslands
tók á móti sinni fyrstu þotu og íslend-
ingar gerðust þar með þátttakendur í
þotuöld, rann upp hjartur og fagur 24.
júní síðastliðinn. Þá var mikið um dýrð-
ir á Reykjavíkurflugvelli, er hinn glæsi-
legi farkostur lenti þar á nákvæmlega
tilsettum tíma, og hafði þá ílogið í tveim
áföngum frá Seattle á vesturströnd
Bandaríkjanna. Frá 1. júlí hefur þotan
flogið á flugleiðum Flugfélags íslands
milli landa og flutt megnið af farþegum
þess á millilandaleiðum. Því miður var
það skilyrði sett fyrir ríkisábyrgð fyrir
hluta af kaupverði þotunnar, að hún
skyldi verða rekin frá Keflavíkurflug-
velli en ekki frá Reykj av ikurflugvelli,
sem er þó tæknilega mögulegt.
Með tilkomu hins nýja Gullfaxa, en
það nafn hlaut þotan, styttist flugtíminn
milli íslands og nágrannalandanna um
helming og farþegar Flugfélags íslands
njóta nú þess bezta á flugleiðum, sem
gerist í heiminum í dag. Boeing-727 get-
114 VORIÐ