Vorið - 01.09.1967, Qupperneq 27

Vorið - 01.09.1967, Qupperneq 27
??En eigum við þá að segja, að þú komir á morgun?“ spurði Florence. „Já, ég skal koma á morgun, því lofa ég yður,“ sagði Jim. Jim kom daginn eftir tötralega klæddur. „Það gleður mig, að þú komst, Jim. Eg er hérna með dálitia peningaupphæð, og nú förum við til klæðskerans og biðj- um hann að sauma handa þér föt,“ sagði Florence. Jim starði á peningana og augu hans Ijómuðu, er hann sagði: „Þetta er allt of mikið, Florence Night- ingale. Hvernig get ég launað yður þetta ? “ „Við skulum ekki tala um það. Mig langaði bara til að hjálpa þér, og eigum við nú ekki að fara til klæðskerans?“ sagði Florence brosandi. Nú breyttist svipur hans. „Má ég ekki kaupa fötin sjálfur? Það fást ágæt föt hjá kaupmanninum og þau eru miklu ódýrari,“ sagði Jim. Florence varð efablandin, en sagði svo: ,,Jú, þú mátt það, og ég vona, að þú gerir eins og ég hef sagt þér,“ og fékk honum síðan peningana. Jim jiakkaði fyrir og gekk síðan út himinlifandi glaður. Dagarnir liðu. Florence bjóst á hverj- um degi við að Jim mundi koma til að sýna sér nýju fötin, sem hann hafði sjálf- ur keypt, en hann kom ekki. Þegar hún fór svo að grennslast eftir Jim, varð hún bæði hrygg og sár, því að henni var sagt, að hann væri farinn eitthvað út í busk- ann. Hún vildi samt fá að vita, hvort hann hefði keypt fötin, en hann hafði hvorki komið til klæðskerans né kaup- mannsins. Hún gekk því heirn vonsvikin yfir að Jim hafði svikið liana. Nú ótt- aðist hún, að Jim væri kominn á flæk- ing og væri einmana einhversstaðar úti í heimi. Tíu löng ár iiðu. Stríð hafði brotizt út á Krím í Rússlandi og Florence Nigthen- gale fór þangað, sem sjálfboðaliði í hjúkrunarsveit hersins og fékk atvinnu á sjúkrahúsi, sem byggt var yfir særða hermenn. Eitt kvöld, þegar hún sat alein í lier- bergi sínu, var drepið á dyr hennar. Inn kom ókunnur maður og sagði henni, að særður hermaður bæði hana oð koma og finna sig. Hann væri í mikilli lífshættu, og síðasta bón hans var að fá að sjá yður áður en hann deyr. A meðan Florence var að búa sig, spurði hún, hvað maður þessi héti. „Jú, hann heitir Johnson, og er einn af mínum beztu hermönnum. Hann er illa særður og ég hef litla von um, að hann lifi þetta af. Hann grátbað mig að ríða hingað og biðja yður að koma áður en hann dæi,“ sagði hermaður. „Sögðuð þér, að hann héti Johnson?“ spurði hún. „Já,“ svaraði yfirmaðurinn. Florence fór að hugsa. „Ég veit ekki til þess, að ég þekki hann. Sagðist hann þekkja mig?“ „Nei, það sagði hann ekkert urn. En hann hefur sjálfsagt lieyrt nafn yðar nefnt. Það er svo oft talað um „konuna með lampann“ hérna á vígstöðvunum. Yður, sem sífellt vakið yfir herraönnun- um og þreytist aldrei.“ Florence brosti, og það var auðséð, að VORIÐ 121

x

Vorið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.