Vorið - 01.09.1967, Side 32

Vorið - 01.09.1967, Side 32
HANDRITIN OG HEIMKOMA ÞEIRRA Landnáma er skrifuS til þess að festa í minni sagnir um þá menn, sem námu hér land. Hún segir frá mörgum atburð- um þessa tíma. Hún er fróðleg bók. í fyrstu hafa landnámsmenn sagt hver öðrum og bömum sínum sögur frá lífi sínu heima í gamla landinu. Svo hafa þeir sagt frá þeim atburðum, sem urðu til þess, að þeir fluttu til íslands. Síðan hafa þeir sagt frá ferðum sínum yfir 'hafið og þegar þeir lenda skipum sín- um við ísland. Sumir segja frá að önd- vegissúlum hafi verið kastað í hafið, og þar sem þær rak á land, byggðu þeir sér bæ. Því réðu goðin. Sögur voru sagðar í rökkrinu á kvöld- in. En ritöld er það kallað, þegar farið er að skrifa þessar sögur niður eftir minni gamalla og fróðra manna. Sög- urnar voru skrifaðar fyrir konunga, í bæjum á íslandi. í Odda og klaustrun- um voru skrifaðar margar sögur, sem einu nafni nefnast íslendingasögur. Flateyjarbók var gefin konungi. Snorri Sturluson skrifaði Snorra- Eddu og Heimskringlu, sem eru sögur um Noregskonunga. Bækur okkar voru upphaflega skrif- aðar á kálfskinn, og voru þau sérstak- lega verkuð til þess og voru sniðin nið- ur í blöð. Kálfsblóð var notað fyrir Llek, en pennar voru skornir úr fjöður- stöfum, hinum svera enda fjaðranna. 011 handrit fornsagnanna eru skrif- uð með jafnri, fagurri hönd, eins og prent væri. Fyrsta gerð hverrar bókar nefnist frumhandrit. Og þeir, sem vildu eignast bækur, urðu sjálfir að skrifa þær upp, eða fá aðra til þess. Skrifaðar bækur gengu manna á milli. Stundum komu óhöpp fyrir handritin. Líka fóru þau smátt og smátt að slitna. Árni Magnússon fræðimaður sá, að handritin voru mjög dýrmæt. Hann tók sig því til og safnaði öllum handritum og gömlum bókum, sem hann gat náð í og flutti þau til Kaupmannahafnar. Þar var þá háskólinn, sem líka var háskóli íslendinga og þar lærðu margir íslend- ingar. Árni var hræddur um, að handritin mundu með tímanum glatast, ef þau væru ekki geymd á öruggum stað í safni. Hann ætlaði að bjarga handrit- unum. En stundum vill illa til. Skip sukku og með þeim mikið af handril- um á leið til Kaupmannahafnar. Þó komst mest allt á sinn stað og varð að miklu safni — Árnasafni. Enn kom voðalegt óhapp fyrir. Eldur kom upp í Kaupmannahöfn, sem komst í Árnasafn. Þar brunnu margar hillur. sem í voru dýrmætar bækuj- og handrit. Árni benti grátandi á bækurnar, er þær voru að brenna og sagði: „Hér brenna bækur, sem hvergi verða framar til í heiminum." Hann leit aldrei glað- an dag eftir þetta, enda lifði hann ekki lengi hér eftir. Árnasafn, sem bjargaðist, er í stóru 126 VORIÐ

x

Vorið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.