Vorið - 01.09.1967, Síða 35
Gljúfrahylur i Breiðdalsú.
andi fá þau tækifæri til að bæta sér það
UPP-
Og um klukkan tvö eftir hádegi var
lagt af stað. Þátttakendur voru þessir:
Ur níu ára bekk: Agúst Þór Sigmars-
s°n, Guðríður Stefánsdóttir, Hilmar
Garðarsson, Magnús Sigurðsson, Pétur
Pétursson og Vilborg Ámundadóttir. Úr
þessum bekk vantaði Jóhönnu Björg-
''rnsdóttur. •—• Ur átta ára bekk voru:
Gísli Baldur Hauksson, Guðný Jónas-
'Jóttir, IJerborg Þórðardóttir, en Áka
Svavarsson vantaði. — Úr sjö ára bekk
v°ru: Anna Björk Guðjónsdóttir, Hrafn
Úelsteð, Hrafn Stefánsson, Jón Jónas-
son, Þráinn Sigfússon, Orn Stefánsson,
en í þennan hóp vantaði Þórdísi Ein-
srsdóttur. — Þrír gestir fóru með, en
þeir voru: Þorgrímur Sigfússon, 10
ara, Steinn Jónasson, 10 ára, og Hanna
Bára Guðjónsdóttir, 6 ára. — Og bíl-
stjórarnir voru: Jónas Jónsson, Sigmar
Pétursson, Stefán Stefánsson og Sigur-
steinn Melsteð.
Fyrst var numið staðar við brúna yfir
Breiðdalsá á Sveinshyl (Svínshyl). Þar
var stigið út og umhverfið skoðað. Og
þótt kalt andaði, sungu börnin tvö lög,
„Nú er vetur í bæ“ og „Nú er sumar.“
En norðanvindurinn lék undir köldum
nótum og ískleprarnir á árhylnum virt-
ust brosa að sumarkveðjum barnanna.
Næsti áfangastaður var Gljúfrahylur.
Hann er um hálfan þriðja km vestur
frá prestssetrinu Heydölum, miðað við
beina loftlínu. Hylur þessi er djúpur og
veiðilegur og ganga að honum allháir
klettar. Rétt austan við hylinn fellur
Fagradalsá í Breiðdalsá að sunnan og
stuttu neðar Þverá að norðan.
Fossinn Bcljandi í BreiSdalsó.
VORIÐ 129