Vorið - 01.09.1967, Síða 37
FRAMHALDSSAGAN:
NÝI LEIKVANGURINN
EFTIR SVERRE BY, SKÓLASTJÓRA
7. KAFLl
Þau voru áhyggjufull í Stiflu, þegar
Aki fór að heiman með þeim ummælum,
að hann ætlaði að vera að heiman alla
nóttina. En þau urðu glöð, þegar hann
kom heim aftur snemma um kvöldið.
Þau sáu, að eitíhvað var að. Það
dróst ekki orð úr drengnum, sem ann-
ars var vanur að segja þeim fréttir af
leikvanginum. Þau vildu ekki spyrja,
því að hann var breyttur frá því, að
hann fór að vinna hjá ömmu sinni. —
Það var bezt að bíða, þar til hann byrj-
aði sjálfur. Og það leið ekki á löngu,
þar til hann sagði frá komu Mikaels á
Mói.
— Sagði Mikael virkilega, að lþrótta-
félagið ætti ekki leikvanginn? spurði
Lúðvik, þegar hann hafði hlustað á frá-
sögn Áka.
— Hann sagði meira, sagði Áki. —
Idann sagði, að Iþróttafélagið í Bjarn-
ardal væri ekki lengur til. Flestir félag-
arnir væru farnir burtu eða dánir.
— Jæja, ég lifi þó að minnsta kosti.
Lúðvík frændi spratt á fætur til að
sanna orð sín.
— Hann lifir líka sjálfur. Við vorum
báðir í íþróttafélaginu. Þvílíkur bullu-
kollur að segja, að félagið sé ekki til.
— En bíddu nú við.
Lúðvík er óþekkjanlegur í dag. Hann
hleypur yfir gólfið, tekur stigann í fá-
um skrefum, og fer inn í herbergi sitt,
kemur aftur þaðan með pappírsblað í
hendinni.
— Hérna er það. Ég vissi að ég
geymdi það, sagði hann. — Það var
gerður samningur, þegar við keyptum
leikvanginn. — Mikael hefur sjálfur af-
rit af honum.
KAUPSAMNINGUR
Undirritaðir haja orðið sarnmála um
að gera ejtirfarandi samning:
íþróttaféltagið í Bjarnardal haupir
land aj Mikael á Mói. Þetta land á að
nota sem leikvang fyrir íbáana í Bjarn-
ardal og er á milli Bjarnár og Rauða-
lœkjar, þar sem þau mætast. Önnur
merki eru þrír steinar í liverju horni.
Kaupverðið er 2000 krónur — tvö
jmsund krónur. — Greiðsla jer ejtir
hentugleikwm, eftir því sem félagið hef-
ur efni á. En öll upphœðin á að vera
greidd í síðasla lagi ejtir 20 — tuttugu
ár — frá dagselningu samningsins.
Bjarnardal, 21. júní 1934.
Vegna seljanda:
Mikael á Mói.
Vegna kaupenda:
Eiríkur í Stíflu,
jormaður íþróttafélagsins.
VORIÐ 131