Vorið - 01.09.1967, Síða 39

Vorið - 01.09.1967, Síða 39
Hann veit hvernig hann á aS ná í pen- inga. Við eldum oft grátt silfur, því að viS höfum nokkur viSskipti. Hann hefur veriS slæmur viSfangs upp á síSkastiS. — Þá hefur hann líklega átt viS þig. — Mig? HvaS áttu viS? — Hann sagSi viS mig, aS hann þekkti mig og mína líka. Og þú ert arnma mín .... Amma klemmdi aftur varirnar. Hún hefur ekki séS samninginn ennþá, en nú fer hún aS lesa hann. Þegar hún sér, hvaS vantar mikla peninga, hristir hún höfuSiS. — Þetta er mikiS. — Ekki ef allir gefa eitthvaS, svarar Aki. — Byrjunina hef ég fengiS frá lnnu og LúSvík. — ÞaS er sennilega ekki nein smá- upphæS, segir hún og lítur til hans yfir gleraugun. Þegar Áki segir henni, hve mikiS þaS sé, sýnist honum læSast fram bros í munnvikinu á henni. — Og þó er þaS bróSir þeirra, sem hefur undirritaS, sýnist mér. Hún legg- ur samninginn á borSiS fyrir framan Áka. — Já, faSir minn, segir hann, eins og til að leggja áherzlu á þaS. Og þegar hún býr sig til aS fara án þess aS segja meira, flýtir hann sér að Wa viS: •— Þetta er síðasti dagur. Peningana Verður Mikael aS fá í kvöld. — Hann verður aS fá þá fyrir miðnætti. — Síð- Ustu setninguna kallar hann á eflir henni. En hún lætur eins og hún heyri það ekki. Svo fá þau nóg að gera í búðinni. Það er sjpjördagur, og fólk úr Bjarnar- dal er inni hjá GuSrúnu að selja vörur sínar og fá aðrar í staðinn. ViS og við stingur Áki höfðinu út um dyrnar og kinkar kolli vingjamlega til þeirra. — Ef hann hefði staðið þar meS söfnunar- lista, hefði hann getað fengið eitthvað inn af peningum. — En hann eða ein- hver hinna hittir þetta fólk síðar um daginn, og þá er gott að hann hefur heilsað því vingjarnlega. Hilmar í HlíS er úr sveitinni í kring- um Velli og hefur smjör meSferðis. Hann er hár, boginn í báki með grátt skegg og sköllóttur. Aðrir fara, þeg- ar þeir hafa verzlaS, en hann er kyrr. AnnaS hvort athugar hann vörur með öðrum, eða hann situr á bekk við dyrn- ar. Hann er með pípuna í munninum og við og við kveikir hann á eldspýtu og ber upp aS pípunni. En Áki sér engan reyk, svo að hann hefur víst ekki neitt tóbak í pípunni. Hann talar alltaf og lítur út fyrir aS þekkja alla. Hann spyr frétta eða segir frá sjálfur og gefur sér góSan tíma. Hann er nú eflaust óheimskur, hugsar Áki og fær meiri og meiri áhuga fyrir að fylgjast með honum gegnum gægju- gatið. Hann segir ýmislegt, sem kemur öðrum til að hlæja, og fylgist með öllu. ÞaS er aðeins ein manneskja, sem ekki hlær aS honum, — það er amma. Hún er stífari en venjulega, og lítur til hans eins og hún óski eftir, að hann fari út úr búðinni. — ÞaS er af því aS hann kaupir svo lítiS, hugsar Áki. Hilmar hefur ekki keypt annað en lítinn pappírspoka með grjónum og nokkrar hafrakökur. Þó er hann alltaf upp viS búSarborðiS aS at- VORIÐ 133

x

Vorið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.