Vorið - 01.09.1967, Page 41

Vorið - 01.09.1967, Page 41
hún, — svo að Mikael á Mói gæti feng- ið ánægjuna af að telja jsá. — Voru það sextán hundruð fjörutíu og níu krónur °g nítíu og átta aurar? Hún segir þetta meðan hún leggur Peningana á borðið fyrir framan Áka. •— Það er bezt, að ég láni ykkur alla peningana. Það er þægilegra fyrir ykk- ur að fá þá á einum stað. Eg veit, að þið greiðið mér þá aftur með fullum skilum. Mér þykir vænt um unga fólkið í Bjarnardal. Svo hafið þið skemmtan- ir og happdrætti og fáið þannig peninga til að grciða mér. Svo fullgerið þið búsið, iðkið knattspyrnu, stökkvið og hlaupið. — En gerið þið nú enga vit- leysu. — Mikael á Mói er kænni en ])ið. En svo er það sýslumaðurinn .... Hún telur peningana einu sinni enn. — Sýslumaðurinn? Já, ég get vel unnt honum að fá góðan blett, en ekki Móa- grundirnar, því að þær á unga fólkið að fá. Ekkert er of gott handa æskunni. Annars flytur hún burt. — Og svo er það faðir þinn, Áki. Hann var víst betri en ég hélt. Og j)að er hans vegna, sem ég lána ykkur þessa peninga, — þið skul- uð minnast hans. Svo skaltu minnast móður þinnar, því að þau voru sam- stillt, og fórnuðu bæði jafn miklu. — Þú skalt ekki heldur gleyma ömmu jrinni. Ef til vill er hún betri en þú — eða þau í Stíflu — álíta. Njóttu vel. Hún ýtti peningunum til hans. Hvað gat Áki gert annað en að taka á móti? Jú, hann á að telja þá. Það er venja. En allt rennur út í fyrir honum, og hann sér varla annað en fimm hundr- uð króna seðlana. — Ég á auðvitað að gefa kvittun, stamar hann. — Auðvitað á Mikael að gefa þér kvittun, og kvittunina áttu að geyma. Hún staðnæmdist andartak lengur, eins og hún ætlaði að segja eitthvað meira, meðan Áki safnar saman pen- ingunum. Nú veit hann ekki hvar hann á að geyma þá. Hann reynir einn vasann eftir annan. Að síðustu lætur hann þá í vasa utan á skyrtunni. Það er eins og hann álíti, að hafi hann þá svo nærri hjartanu, muni liann ekki týna þeim. Nú man hann eftir, að hann hefur gleymt að þakka ömmu sinni fyrir, en þegar hann snýr sér við, þá er hún á leið út í búðina. Framhald. E. Sig. þýddi. ,1 Með tárin rennandi niður kinnarnar p (• tilkynnti lítill drengur kennslukonu I1 sinni, að það væru aðeins ein gúmmí- (• d stígvél eftir í fatageymslunni. Kennslu- (* * konan leitaði nú í öllum krókum og \ kimum að stígvélum litla drengsins, en \ gat ekki fundið þau, sem drengurinn i var að leita að. Loks sagði hún, dauð- i þreytt af leitinni: # (* „Ertu alveg viss um, að þetta séu i ekki þín stígvél?" V ■ „Já,“ svaraði drengurinn. „Mín voru \ . ( snjóug.“ i ]( Málafærslumaður og skósmiður sátu i (l saman í lestinni. # (• — Ef ég yrði svo óheppinn, að i (* eignast heimskan son, sagði mála- t *] færslumaður, — þá myndi ég láta hann f ■ verða skósmið. \ ( — Jæja, svaraði skósmiðurinn. — \ (I Þér hugsið þá öðru vísi en faðir yðar. / } t VORIÐ 135

x

Vorið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.