Vorið - 01.09.1967, Blaðsíða 42

Vorið - 01.09.1967, Blaðsíða 42
AÐ LOKNU PRÓFI FYRRI ÞÁTTUR Leikendur: Pallir=P. Kalli=K. Leikurinn fer fram í forsal barna- skóla að loknu prófi í sögu. Sviðið er fyrst autt, þá kemur Palli inn með blað í hendinni og virðist vera að lesa það, er hann staðnæmist fyrir miðju sviði. Kalli kemur sömu leið á eftir og segir: K: Þú slappst út á undan mér. Eg ætl- aði mér þó að verða fyrstur. P. (hrekkur saman, snýr sér við og fel- ur blaðið aftan við bak). Nú, ert það bara þú, Kalli? K: Já, það er bara ég. En hvaða ósköp lá þér á á undan mér? P: Ég gat ekki svarað öllum spurning- unum, svo ég fór bara. K: Þá var ekki að undra, þótt ég yrði á eftir þér, því ég svaraði öllum spurn- ingunum, og ég býst frekar við því, að ég hafi haft þær allar réttar. P: Æ, mikið átt þú gott. Heyrðu, hérna er ég með allar spurningarnar. Mig langar að vita, hvernig þú hefur svar- að þeim. (Sýnir Kalla blaðið). K: Já, lestu þær bara. P. (les): Hvað hafði Flóki marga hrafna með sér til íslands og til hvers not- aði hann þá? K: Ég vissi náttúrlega ekki, hvað þeir voru margir, en ég vildi vera viss um að hafa þá nógu marga, svo ég skrif- aði 500. Það lá náttúrlega í augum uppi til hvers hann notaði þá, fyrst hann hafði ekki hænsni. Þess vegna skrifaði ég: „Hann lét þá verpa og át þá síðan, og þannig hafði hann ný egg og nýtt kjöt alla leiðina.“ P: Þetta getur varla verið rétt hjá þér. Það er a. m. k. ekkert um það í ís- landssögunni. K: Það skiptir engu máli. Menn temja ekki fugla til annars en láta þá verpa eða éta þá. P: Þá hef ég ekki svarað þessu rétt, því mig minnti, að hann hefði notað þá í staðinn fyrir áttavita. K: Áttavita! Sá er nú góður: Að nota hrafna fyrir áttavita! Mikill dæma- laus grasasni ertu ævinlega. Auðvitað hafði liann venjulegan áttavita í brúnni hjá sér, annars hefði hann aldrei komizt til íslands. P: Já, eiginlega hlýtur það að vera. En hvernig svaraðirðu næstu spurningu? K: Ilvernig er hún? P: Hvar komu öndvegissúlur Ingólfs að landi? K: Þær komu að Ondverðarnesi. P: Að Öndverðarnesi? Það vissi ég ekki. Ég hélt þær hefðu komið að landi í Reykjavík. K: Alltaf ertu sami þöngulhausinn. Þú heldur að allt leiti til Reykjavikur. Nei, karl minn, slíkt var ekki komið í tízku þá. Það liggur svo í augum uppi) að Öndverðarnés dregur nafn af því að öndvegissúlurnar rak þar að landi. Það er ekki að búast við því, að þér gangi vel í prófum, þegar þér getur 136 VORIÐ

x

Vorið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.