Vorið - 01.09.1967, Side 43

Vorið - 01.09.1967, Side 43
aldrei dottiÖ neitt frumlegt í hug. Það sem bjargar mér í prófum, er hvað mér heppnast alltaf að geta snilldar- lega í eyðumar. Eg þarf bókstaflega aldrei að líta í bækur fyrir prófin. P: Ég þori helzt aldrei að skrifa neitt, nema ég sé viss um, að það sé rétt. Eg er svo hræddur um, að það verði hlegið að mér. K: Það er ekki svo hættulegt, og sama er mér, þótt hlegið sé að mér. En hvernig er svo þriðja spurningin? E: Hvers vegna drápust allar skepnur Hrafna-Flóka fyrsta veturinn, sem hann var ó íslandi? K: Auðvitað úr mæðiveiki. Hún er hvergi til nema á íslandi, svo að það lá alveg í augum uppi. E: Það er náttúrlega rétt hjá þér. Ég mundi bara ekkert eftir henni, svo að ég sagði, að þær hefðu allar drepist úr hungri. K: Já, ekki færðu mikið fyrir það svar. K: Nei, það er sjálfsagt ekki. En svo kemur hérna: „Hvað sagði Geirmund- ur við Atla, þegar hann bjargaði skipbrotsmönnunum ? “ K: Hann reifst heilmikið og sagði, að Atla hefði ekkeit komið þetta við. Hann hefði heldur átt að láta slysa- varnarfélagið vita. ' : Heldurðu, að slysavarnarfélagið hafi Verið til þá? K: Auðvitað. Vitanlega hefur slysa- varnarfélagið alltaf verið til. Ég veit ekki, hvernig menn hefðu átt að kom- ast af án þess. • Mig minnti, að Geirmundur hefði gefið Atla búið og frelsi. K: Það var einhver allt annar karl, sem gerði það. P: Það er líklega rétt hjá þér, en þó minnir mig endilega, að það hafi ver- ið Geirmundur. K: Það er eintóm vitleysa. En láttu mig 'hafa næstu spurningu. P: Nefndu fjóra afreksmenn. K: Ég var ekki í vandræðum með það. Ég svaraði þeirri spurningu bara með einu orði: Ég skrifaði „Bítlarnir.“ P: Nei, þetta getur ekki verið rétt hjá þér. Það er ekkert getið um bítlana í íslandssögunni. K: Það getur vel verið, en miklir af- reksmenn eru þeir nú samt. P: Að vísu eru þeir miklir afreksmenn, en samt held ég, að það hafi verið átt við karla eins og Egil, Kára, Gunnar og Skarphéðinn. K: Það getur vel verið, að þú hafir eitt- hvað fyrir þér í því, en mitt svar er samt miklu sniðugra en þitt og þar aí leiðandi fæ ég líka miklu meira fyrir það. P. (vantrúaður): Það getur verið. K: Afram með smjörið. P: Svo er spuit um, hvað Auður Vé- steinsdóttir hafi gert við fé það, sem Eyjólfur borgaði henni til að fram- selja Gísla Súrsson. K. (klórar sér í höfði): Ég rnundi það ekki vel, svo ég sagði bara, að hún hefði keypt sér ísskáp fyrir það. P: Ertu nú alveg viss um að það sé rétt? K: Ja....hvað hefði hún getað gert annað þarfara við það? P: Það veit ég svei mér ekki. Kannski hefur hún bara skilað því aftur. K: Ertu alveg frá þér! Menn skiluðu VORIÐ 137

x

Vorið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.