Vorið - 01.09.1967, Side 44

Vorið - 01.09.1967, Side 44
aldrei því, sem þeir náðu í á þeim dögum. P: Kannski er það rétt hjá þér eins og annað. K: Já, það máttu vera viss um. En láttu mig hafa meira. P: Næst er spurt um ævilok Jóns Ger- rekssonar. K. (glaður): Já, ég mundi alveg, hvern- ig það var. Möðruvallamenn settu hann í poka og hentu honum í Núpá. P: Þeir hentu honum í Brúará. K: Ég held það skipti minnstu máli, í hvaða á þeir hentu honum. Aðalatr- iðið er, hvernig þeir losuðu sig við hann. Mikið fjári var það snið- ugt hjá þeim. P: Já, það finnst mér líka. En svo kem- ur hér áttunda spurningin: „Hvað sagði Ólöf ríka, þegar hún sá mann sinn dauðan?“ K: Það var það eina, sem ég vissi ekk- ert, hvernig ég ætti að svara. Þá tók ég það ráð að skrifa númerið á spurn- ingunni upp á miða og halda honum þannig, að Halli sæi það. Hann var ekki lengi að átta sig á því, hvað ég vildi og hvíslaði svo að enginn ann- ar heyrði: „Ekki skal gráta Björn Blöndal." P: Björn Blöndal? Sagði hann ekki Björn bónda? K: Nei, hann sagði Björn Blöndal, en skollinn má vita, hvað hann meinti með því. Ég skrifaði það nú samt. P: Þarna hefur þér misheyrzt, karlinn. Hún sagði: „Ekki skal gráta Björn bónda, heldur safna liði.“ K: Það gerir þá ekki svo mikið til, því ég er viss um, að öll hin svörin eru rétt hjá mér. Ég ætti því að vera alveg öruggur með að fá 9 á þessu prófi. P: Það eru nú tvær erfiðar spurningar eftir. K: Já, láttu þær koma. P: Hvers konar bækur björguðust helzt úr bókabrunanum mikla? K: Það voru bækur Guðrúnar frá Lundi. P: Það er ekki rétt hjá þér? K: Ja .... það er að segja. Það hafa kannski bjargast eitthvað fleiri bæk- ur, en bækur Guðrúnar hafa örugg' lega bjargast, því þær eru allar til heima hjá mér og mamma segir, að þær séu bezlu bækurnar á heimilinu. P: En það stendur í íslandssögunni, að aðeins dýrmætustu skinnhandritin hafi bjargast úr brunanum. K: Já, það stendur alveg heima. Guð- rún hefur vafalaust skrifað hækui' sínar á skinn til að byrja með, og svo hafa þær verið taldar til dýrmætustu handritanna. P: Eg trúi því varla, þvi Guðrún frá Lundi er lifandi enn, og það er langt síðan menn hættu að skrifa á skinn. K: 0, blessaður vertu. Þær skrifa á alh þessar kerlingar. P: Jæja, síðasta spurningin er svona: „Iivaða manni eiga íslendingar öðr- um fremur sjálfstæði sitt að þakka? K: Þessi spurning kom mér í Ijótan vanda. Ég vissi að vísu, að það hlaut að vera einhver úr Sjálfstæðisflokkn- um. En hvort það var heldur Bjarni Benediktsson eða Ólafur Thors, vat mér ómögulegt að vita. Pabbi talar oft um þá, en ég hef aldrei fylgzt svo vel með því, að ég vissi við hvorn þeirra var átt með spurningunni. Ég 138 VORIÐ

x

Vorið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.