Vorið - 01.09.1967, Síða 45
skrifaði seinast Ólaf Thors, en setti
Bjarna Benediktsson þar aftan við,
svona til vara, en hafði hann í sviga.
Ef ég hefði ekki verið í þessum
vandræðum með þá Ólaf og Bjarna,
hefði ég orðið fyrstur út úr prófinu.
Þú stóðst upp og fórst rétt í því, að ég
var að setja svigann utan um Bjarna.
(Barnaraddir heyrast).
B: Nú eru hinir krakkarnir að koma.
E: Já, við skulum flýta okkur burt, svo
þau hitti okkur ekki hér.
(Þeir hverfa út hinum megin á
sviðinu).
T jaldið.
ANNAR ÞÁTTUR
Leilcurinn fer fram á heimili kennarans.
Leikendur: Kennarinn og faðir Kalla.
Þegar tjaldið er dregið frá, situr
kennarinn við skriftir með stóran bunka
af blöðum í kringum sig. Dyrnar opnast
snöggt og faðir Kalla snarast inn á gólf-
ið.
E. Hvað á það að þýða, að gefa syni
mínum ekki nema 3 á prófinu? Ætl-
astu kannski til þess, að hann sitji i
bekknum næsta ár?
K: Eins og nú horfir, lítur úr fyrir, að
ekki verði hjá því komizt.
E: En, hvað meinarðu með þessu?
Drengurinn, sem veit alla skapaða
hluti, fær ekki nema 3 í aðaleinkunn.
E: Ég gaf honum það, sem hann átti
skilið og kannski rúmlega það.
E: Ég hef ekki heyrt aðra eins
ósvífni. Ég hef aldrei gert neitt á
'hluta þinn, en samt vogarðu þér að
h'emja þetta bölvað ranglæti. Ég
heimta tafarlausa leiðréttingu á þessu,
og þú verður að gjöra svo vel að
biðja drenginn fyrirgefningar og
skrifa handa honum nýtt prófskírteini,
þar sem honum er gefið réttlátlega
fyrir.
K. (stendur upp): Ég var rétt áðan að
segja þér, að ég gaf Kalla fyllilega
það sem hann átti. Og ég vil ekki
hafa, að hér ráðist inn óboðnir gest-
ir með óbótaskönnnum. Þú skalt
kynna þér betur frammistöðu Kalla
á prófinu, áður en þú krefst breyt-
inga á prófskírteininu hans. Að því
búnu máttu koma aftur og tala við
mig, en nú þýðir sýnilega ekki fyrir
okkur að tala meira saman. (Bendir á
opnar dyrnar).
F: Ertu kannski að reka mig á dyr?
(Lemur í borðið). Ég skal bara segja
þér, að ég fer ekki ,fet, fyrr en þú
hefur viðurkennt þína rangsleitni,
skrifað nýtt prófskírteini og beðið
okkur fyrirgefningar á framferði þínu.
K: Ef þú hypjar þig ekki út á stund-
inni, skal ég kæra þig fyrir ósæmilegt
framferði og röskun á heimilisfriði.
F: Og ég skal svo sannarlega kæra þig
fyrir skólanefndinni, fræðsluráði,
námsstjóra, hreppstjóra, sýslumanni,
bæjarfógeta, fræðslumálastjóra og
ráðherra, og að mér heilum og lif-
andi skal ég sjá svo um, að þú verðir
rekinn frá starfi með skömm og sví-
virðingu og fáir aldrei framar starf
sem kennari. (Steytir hnefana).
K. (rólegri): Já, þú skalt reyna það. En
ég vil bara spyrja þig, áður en þú
ferð, hvað kernur þér til að álíta, að
sonur þinn hafi staðið sig vel á próf-
inu?
VORIÐ 139