Vorið - 01.09.1967, Page 46
F: Það kemur í ljós, þegar þú verður
kallaður fyrir rétt. (Gerir sig líkleg-
an til að fara).
K: Þú hefur ekki séð úrlausnirnar hans
Kalla á prófunum.
F. (dokar við): Ég þarf þess ekki. Ég
veit, að hann svaraði svo til öllum
spurningum. T. d. svaraði hann öll-
um spurningunum úr Islandssögu og
hann álítur, að þar hafi í mesta lagi
verið eitt rangt svar hjá sér, og samt
gefur þú honum ekki nema einn fyrir,
en Palli fékk 8, þótt hann svaraði litlu
eða engu rétt. Þetta kalla ég rang-
sleitni af verstu tegund og þú skalt
svo sannarlega fá að borga fyrir
hana. (Ætlar til dyra).
K: Bíddu við. Hvernig veiztu þetta?
F: Ég veit það vel, vegna þess að dreng-
irnir báru saman svör sín að loknu
íslandssöguprófinu.
K: Og kom þeim saman um, að Kalli
hefði svarað svo til öllu rétt, en Palli
sama sem engu?
F: Já, svo sannarlega kom þeim saman
um það.
K: Jæja, það vill svo vel til, að ég hef
úrlausnir beggja drengjanna hér á
borðinu hjá mér. (Leitar á borðinu
og finnur blöðin, meðan hann talar).
Og mér væri sönn ánægja að því, að
þú vildir líta á þær, áður en þú ferð.
Hérna koma spurningar úr íslands-
sögu og hérna eru úrlausnir þeirra
Kalla og Palla. (Réttir blöðin yfir
borðið). Lestu þetta sem snöggvast.
F. (hrifsar blöðin og fer að lesa. Reiði-
svipurinn hverfur smám saman fyrir
undrun og siðar kemur óttasvipur á
andlitið. Étur upp): Mæðiveiki! —
Slysavarnarfélagið? — Bítlarnir!!!!
— Isskápur! — Björn Blöndal? —-
Guðrún frá Lundi! — Og Ólafur
Thors!! — Hamingjan hjálpi mér!
(Missir blöðin og hnígur niður á
stól).
K: Jæja, hvað segirðu svo um þetta?
(Ekkert svar). Já, ég skil vel, að þér
lítist ekki á svörin, en ég gaf honum
samt einn fyrir þau, vegna þess að
það var margt sniðugt í þeim, þegar
alls var gætt. Tjaldið.
Angantýr Hjálmarsson.
j
TIL LESENDA: l
Vorið þakkar öllum þcim, sem 7
greitt hafa órgjaldið skilvislega. — 7
Einnig þeim útsölumönnum, sem sent /
hafa greiðslu fyrir þetta ór. T
Blaðið vill endurtaka það, að 7
greiðslur ber að senda til Eiríks Sig- 1
urðssonar, pósthólf 177, Akureyri, og 1
tilkynningar um breytt heimilsföng. \
Uppsögn blaðsins er bundin við \
óramót. — ÚTGEFENDUR. \
BRÉFASKIPTI
Óskum eftir bréfaskiptum við jafn- aldra einhversstaðar á landinu. Æski- legur aldur pennavina tilfærður í svig-
um:
Helga Ifalldórsdóttir, Brekkum III,
Mýrdal, V.-Skaftafellsýslu. (11—13).
Asa Valgarðsdóttir, Asi, Skagafirði (8—10). Hegranesi,
Björg Guðmundsdóttir, Skógum,
Flókadal, Borg. (11—13). -
140 VORIÐ