Vorið - 01.09.1967, Síða 48

Vorið - 01.09.1967, Síða 48
MARTEINN: En fyrst þeir vita, að það er rangt að drekka og vilja hætta, hvers vegna geta þeir það þá ekki? KENNARINN: Af því að þeir eru veik- ir. Áfengið hefur eyðilagt eitthvað í sálarlífi þeirra. Þá bæði hungrar og þyrstir í áfengi. Hafið þið ekki ein- hvern tíma orðið sársvöng eða mjög þyrst? Hvaða áhrif hefur það á ykk- ur, þegar þið sjáið kökur, gosdrykki eða annað, sem ykkur þykir gott? Svipuð því, en þó miklu sterkari er löngun ofdrykkjumannsins í áfengi. Þörfin fyrir áfengi fær algert vald yfir honum, og svo fellur hann fyrir freistingunni. EVA: Er hægt að hjálpa ofdrykkju- mönnum til að hætta? KENNARINN: Það er reynt að hjálpa þeim á ýmsan hátt. Sumir þeirra eru sendir í heilsuhæli, sem ætlað er áfeng- issjúklingum. Þar fá þeir góðan að- búnað, gott og næringarmikið fæði og tækifæri til að vinna. Og sumir læknast þar alveg. Það er talið ,að nálægt þriðjungur af þeim, sem fara í heilsuhæli, verði heilbrigðir. Ann- ars er reynt að hjálpa þeim með fleiri aðferðum. ÁSLAUG: En hvers vegna byrjuðu þess- ir ofdrykkjumenn að drekka? KENNARINN: Því er erfitt að svara. Ástæðurnar geta verið margar. Oft stafar það af því, að þessir menn eru að einhverju leyti óánægðir með sjálfa sig. Sumir voru ef til vill ó- ánægðir með útlit sitt, aðrir þjáðust af feimni, sumum fannst þeir ekki standa jafnfætis félögum sínum. Sum- ir strákar byrja að reykja og drekka, af því að þeir álíta, að stúlkunum líki það betur. ÓLAFUR: Ég þekki mann, sem drekkur. Mamma hefur sagt mér, að hann hafi byrjað að drekka, þegar unnusta hans giftist öðrum. KENNARINN: Sorgir, áhyggjur, von- brigði og mótlæti í lífinu hafa mis- munandi áhrif á menn. Á marga hef- ur mótlætið þau áhrif, að það styrk- ir hina góðu eiginleika í fari þeirra. Þeir verða skilningsríkari, tilfinn- inganæmari fyrir sorgum og erfið- leikum annarra, og bæði í orði og verki sýna þeir vimgjarnleik og góð- vild. Það er eins og sorgin hafi kall- að fram það bezta í þeim. Aðrir verða harðir og hefnigjarnir, en sum- ir bogna alveg við mikið mótlæti. Þeir missa trú á sjálfa sig, gefast upp, og 142 VORIÐ

x

Vorið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.