Vorið - 01.09.1967, Qupperneq 49

Vorið - 01.09.1967, Qupperneq 49
svo flýja þeir erfiðleikana, til dæmis með því að leita huggunar hjá flösk- unni. KlARTEINN: Bjuggust þeir, sem urðu áfengissjúklingar, við því að verða drykkjumenn, þegar þeir hyrjuðu að drekka. KENNARINN : Nei, þeir hvorki bjugg- ust við því né óskuðu þess. Þeir, sem voru beygðir af sorgum og mótlæti, hugsuðu aðeins um að gleyma því. sem amaði að þeim þá stundina. Og sumir hugsuðu ef til vill á þessa leið: Eg er svo heilbrigður og heilsuhraust- ur og skal gæta hófs, og þá er ekkert hættulegt, þó að ég drekki dálítið mér til gamans. KVA: En af hverju kemur það, að sum- ir geta drukkið í hófi, en aðrir verða áfengissjúklingar? KENNARINN : Þetta er erfið spurning. Eins og þið vitið, eru mennirnir ó- líkir. Sumir hafa mikið mótstöðuafl, en aðrir lítið. Sumir fá kvef, ef þeir blotna í fætur. Aðrir geta verið blaut- ir í fætur dögum saman án þess að verða neitt meint af. Það lítur úr fyrir, að sumir verði fremur þrælar áfeng- isins en aðrir, og enginn veit fyrir fram, hver það verður. Þess vegna er það aldrei hættulaust að byrja að drekka í hófi. Áður en menn vita af, getur verið of seint að hætta. Við getum haft veikleika gagnvart áfengi án þess að vita af því. Að byrja að dreklca áfengi er eins og að jara út á ís, sem enginn veit, hve sterlcur er. Það getur gengið vel, en alltof ofl kemur ógæfan þar við sögu. ÁSLAUG: Geta konur orðið áfengis- sjúklingar? KENNARINN: Já, talsvert margar kon- ur eru áfengissjúklingar. ÓLAFUR: Hvernig eru áhrif áfengis á líkamann? KENNARINN: Áfengið sameinast blóð- inu frá þörmunum án þess að melt- ast. Blóðið flytur svo áfengið til allra fruma líkamans. Áfengið er eitur, og eitrið hefur áhrif á frumurnar. Ekki þola allar frumur jafnvel eituráhrif- in, en verst þola taugafrumurnar þau. Sumar af frumunum í heilaberkinum hafa það hlutverk að stjórna hugsun- um okkar og gjörðum. Einmitt þessar frumur þola verst eituráhrif áfengis- ins. Þess vegna þarf ekki nema til- tölulega lítil áfengisáhrif til þess, að menn missi stjórn á því, hvað þeir hugsa og gjöra. Framhald. VORIÐ 143

x

Vorið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.