Vorið - 01.08.1971, Blaðsíða 8

Vorið - 01.08.1971, Blaðsíða 8
 vJCV # ..............j SLÆGJUR LEIRIT í 4 ÞÁTTUM p- »■ • ••••••••••••••• y ^••••••••••••••••••••••••1 W !•••••••••••••••••••••• ..Á&N.... LCN ...........••• t}: Leikendnr: Mamma, Steini, Bína, Siggi og Ella. 1. ÞÁTTUR. Bína: Á ég að segja þér nokkuð, Siggi ? Siggi: Já, livað er það, Bína? Bína: Dálítið, sem enginn veit, nema ég og mamma. Siggi: Segðu mér það, Bína. Bína: Slægjumar eiga að vera á sunnu- daginn, en þú mátt ekki segja það. Siggi: Slægjur, hvað er það ? Bína: Veiztu það ekki? Slægjurnar eru haldnar, þegar 'búið er að hirða seinasta heyið. Siggi: Nú, það er sama og. töðugjöld. Bína: Nei, töðugjöld eru gefin, þegar búið er að hirða túnið, en slægjurnar þegar búið er að hirða af enginu. Siggi: Veiztu hvernig slægjurnar verða, Bína? Bína: Já, mamma ætlar að baka jóla- köku og lummur og pönnukökur, og svo á að gefa steik og vínsúpu og allt það bezta, sem til er, eins og í veizlu. Svo á að syngja og koma í leiki. Já, og svo sagði mamma að ætti að lesa lesturinn. Siggi: Hvers vegna á að gera það, Bína? Bína: Ja, það er víst alltaf gert. Siggi: Ó, hvað ég hlakka til, Bína. Bína: Já, en passaðu nú að láta engan vita það, mamma ætlar að láta það koma öllum á óvart, svo að það verði enn meira gaman. 2. ÞÁTTUR Mamma: Góðan daginn, börnin mín. 011 börnin: Góðan daginn, mamma mín. Mamma: Nú er má'l að vakna. Það er sunnudagur og glaða sólskin, og hér kem ég með ýmislegt gott handa ykkur. Börnin: Megum við fara í fallegu föt- in, mamma? Mamma: Já, allir eiga að vera búnir sem bezt í dag, því að nú á að gefa slægjurnar og þakka Guði fyrir allt, sem hann hefir gefið okkur. Steini: Þú sagðir einu sinni, að við ættum að þakka Guði á hverju kvöldi. Mamma: Já, en í dag á allt að vera sem hátíðlegast, því að nú á sérstaklega að þakka Guði fyrir, að allar hlöður eru fullar af iðgrænu heyi, svo að engin skepna þarf að vera svöng í vetur. En svo á líka að þakka Guði fyrir allt ann- að gott. Siggi: Per hún Gráhosa mín að koma heim af fjallinu bráðum? 011 bömin: Já, og kindin mín? Mamma: Já, nú verður bráðum farið að sækja féð upp á fjöllin. Börnin: Ó, hvað það verður gaman. Ella: Ég vil láta sækja kindurnar 116 Vorið

x

Vorið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.