Vorið - 01.08.1971, Blaðsíða 26

Vorið - 01.08.1971, Blaðsíða 26
JULES VERNE: Grant skipstjóri og börn hans TÍUNDI KAPlTULI í Pampasvirlci. Þegar þeaair fagnaðarfundir liöfðu átt sér stað, uppgötvuðu menn, að allir kvöldust af sár- um þorsta. En til allrar hamingju var nú skammt til árinnar. Klukkan tíu gaf Glenvan merki um, að halda skyldi af stað. En áður en ferðin var hafin, voru allar leðurflöskurnar fylltar af vatni, og þvi næst mjakaðist hópurinn af stað. Hestarnir höfðu nú jafnað sig og náð fullum kröftum aft- ur. Þess vegna var sprett úr spori hinn fyrsta áfanga. Talkave hafði búizt við að liitta Indíánana, sem hann taldi víst, að hefðu Grant skipstjóra sem gísl, mjög bráðlega. En lionum varð það nokkurt undrunarefni að finna enga Indíána á þessum slóðum. Glenvan spurði landfræðinginn, hvaða skýr- ingu Talkave gæfi á þessu. „Hann getur ekki skýrt það á neinn hátt/‘ mælti Paganel. „Hvaða Indíánakynflokk bjóst liann við að hitta?‘ ‘ „Þá, sem hefðu útlenda fanga á sínum veg- um.“ „Hvers konar menn eru það?“ „Ræningjar, sem réðu lögum og lofum í þess- um byggðarlögum fyrir 30 árum, áður en þeir voru hraktir út á sléttuna. Síðan hafa þeir orð- ið að lúta öðrum, að svo miklu leyti, sem Indí- ánar geta beygt sig undir annarra stjórn, og nú lifa þeir á flækingi og ránum. Eg er þvi undrandi yfir því, engu síður en Talkave, að ekki skuli sjást nein spor eftir þá á þessum slóðum, sem eru aðalheimkynni þeirra.“ „Hvað eigum við nú að gera?“ spurði Glen- van. Paganel ráðfærði sig við Talkave nokkrar mínútur, en mælti síðan: HANNES J. MAGNÚSSON ÞÝDDl „Mér líkar vel tillaga Talkaves. Hann leggur til, að við höldum viðstöðulaust áfram í austur- átt, þangað til við komum að virki einu, sem nefnist Pampasvirki. Þar getum við að minnsta kosti fcngið að vita, hvað orðið hefur af Indí- ánunum.' ‘ Nú var haldið áfram austur að Pampasvirki. Páeinir setuliðsmenn voru í virkinu, allt ungir menn. Elzti hermaðurinn var ekki mikið yfir tvítugt, en sá yngsti var sjö ára. Þetta var í raun og veru drengjahópur, sem hér vandi sig við hermennsku. Einkennisbúningur þeirra var röndótt skyrta, sem þeir girtu að sér með leður- belti. Ilvorki voru þeir í buxum né sokkum, og því síður áttu þoir nokkra kápu. Yeðurfar var svo milt á þessum slóðum, að þeir gátu vel ver- ið án þessara klæða. Hver þessara kappa liafði bæði byssu og sverð. Allir voru þeir sólbrenndír og furðanlega líkir hver öðrum, enda varð það skiljanlegt, þegar það vitnaðist, að þotta voru 12 b.æður, sem voru þjálfaðir af þeim þrettánda. Paganel var J>að nokkurt undrunarefni, að heræfingar þeirra fóru fram oftir frönskum regl- um. Hann heyrði meira að segja, að liðþjálf- inn gaf skipanir sínar á frönsku. „Þetta er stórmerkilegt/ ‘ sagði Paganel. En Glenvan hafði ekki lagt leið sína austur að Pampasvirki til að sjá drengi að lieræfing- um, og því síður braut hann lieilann um það, livaðan þeir væru ættaðir. Hann bað Paganel að fara til virkisins og spyrja eftir foringjan- um. Landfræðingurinn var fús til þess. Einn hinna litlu liermanna gekk nú inn í liús eitt lítið, sem notað var sem eins konar hermanna- skáli. Skömmu síðar kom foringinn sjálfur í Ijós. Það var þreklogur maður um fimmtugt, hermannlegur að útliti, með stutt yfirvararskegg, lítið oitt farinn að hærast, en augun hörkuleg og skipandi. Hann bar sig vel og virtist vera vanastur þvi að láta aðra hlýða Bér. Paganel kynnti Glenvan greifa og félaga lianS fyrir höfuðsmanninum, en meðan sá síðastnefndi 134 VORIÐ

x

Vorið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.