Vorið - 01.08.1971, Blaðsíða 16

Vorið - 01.08.1971, Blaðsíða 16
EINAR LOGI EINARSSON: DORI FER Þegar ég var lítill drengur, sagði móð- ir mín mér oft sögur, áður en ég fór að sofa á.kvöldin, og bjó hún þær þá oft til sjálf. Ein var um hann Dóra, sem fór á berjamó, og hana langar mig til að segja ykkur núna. Dóri hét reyndar Iíalldór, en var bara kallaður Dóri, en það er algengt að stytta mannanöfn í daglegu tali, eins og þið öll vitið. Dóri litli var níu ára þegar sagan gerðist. Það var um haust og hann var að byrja annað árið sitt í skólanum. Hon- um þótti fjarska skemmtilegt að vera kominn í skólann aftur. Þar lærði hann svo margt, sem honum þótti gaman að, svo sem að lesa og skrifa, og stundum fengu börnin að teikna eða búa til ýmsa muni úr leir. Það þótti Dóra fjarskalega gaman. Svo var það, þegar Dóri var búinn að vera nokkra daga í skólanum, að kennar- inn sagði við börnin: „Jæja, börnin góð. Á morgun skuluð þið koma sérstaklega vel búin í skólann, og þið skuluð hafa með ykkur eitthvert ílát, því að ég ætla með ykkur til Þing- valla á berjamó.“ Þetta þótti krökkunum aldeilis spenn- andi. Þau vissu öll hvar Þingvellir voru, og höfðu reyndar öll komið þangað ein- hvern tíma í fylgd með foreldrum sínum. „Svo skuluð þið líka hafa með ykkur nesti, því við verðum það lengi í ferð- inni, að þið verðið áreiðanlega orðin Á BERJAMÓ svöng, áður en við komum heiin aftur,“ hélt kennarinn áfram. I frímínútunum var eltki um annað tal- að en þessa væntanlegu berjaferð og til- hlökkunin var mikil hjá börnunum. Þeg- ar skólanum var lokið þennan dag, hljóp Dóri í einum spretti heim til sín „Mamina, mamma,“ hrópaði hann, þeg- ar hann kom inn úr dyrunum. „Við eig- um að fá að fara á berjamó á morgun.“ „Það var gaman að heyra, Dóri minn,“ sagði mamma hans. Síðan sagði hún Dóra að setjast hjá sér, og ræddu þau um það drykklanga stund, í hverju hann ætti að fara, og hvað hann vildi nú helzt liafa með sér í nesti. Svo fór mamma fram í búr og náði þar í heljarstóra dós undan sultu. „Þetta er nú stór dós,“ sagði mamma, þegar hún kom aftur til Dóra. „Ég hugsa nú að þú getir ekki tínt hana fulla.“ „Jú, jú,“ sagði Dóri litli með ákafa. „Eg ætla að vera svo duglegur.“ Dóra litla gekk illa að sofna þetta kvöld, því tilhlökkunin var svo mikil. Að lokum kom þó Óli lokbrá og spennti regn- hlífina sína yfir höfuð hans,’en eins og þið vitið er það hann, sem lætur okkur sofna á kvöldin. Morgunninn rann upp. Þegar Dóri litli vaknaði, þaut hann út að glugganum til að gá til veðurs. Jú, það gat ekki betra verið. Iliminninn var heiðskír og sólin skein glatt Lognið var svo mikið, að trén í garðinum hreyfðust ekki. 124 VORIÐ

x

Vorið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.