Bjarmi - 15.12.1915, Side 13
B J A R M I
191
Svo kom aðfangadagurinn. Páll og
Lisa skildu síst í hvað pabbi og
mamma væru altaf að gera i lillu
stofunni. Þau voru ekki vön að vera
þar öllum stundum. Og mamma var
reyndar að sjóða rúsínugraut, og
Páll bafði séð bæði saft í flösku og
sleikl kjöt í eldhúsinu. Pau systkinin
þurftu að líla eflir mörgu þennan
dag. »Hestarnir« __ bans Páls voru
undir rúmi og »brúðuvagninn« sömu-
leiðis, en Lísa hélt á brúðunni sinni
i fanginu og lölti sífelt fram og aftur
úr svefnherberginu í eldhúsið og sömu
leið aftur til svefnberbergisins.
Loksins byrjaði þá bátíðin. Pabbi
og mamma, Páll og Lísa sungu jóla-
sáimana, og pabbi las söguna um
barnið í jötunni, og pabbi bað bæn
og þakkaði honum, sem gefur, Iíknar
og græðir. Svo bar mamma góða
malinn á borðið. Sá var nú bærilegur
á bragðið. Börnin skildu ekkert í,
hvaðan hann var. Svo þökkuðu þau
fyrir matinn og mamma flýlti sér að
að þvo af diskunum. Svo hvíslaði
pabbi einhverju að mömmu og
mamma leiddi bæði börnin, en pabbi
fór á undan og opnaði dyrnar á litlu
stofunni, og börnin stóðu orðlaus af
undrun. Pví inni í litlu stofunni stóð
jólatré alsett glitrandi ljósum og alls
konar skrauti. Og við fótinn á jóla-
trénu voru jólagjafir, og þvílíkar gjafir
hafði þau aldrei dreymt um. Börnin
þurftu að skoða þetta alt vel og vand-
lega. Svo spurði mamma: »Hvaðan
haldið þið, að alt þetta sé?«
Páll var skjólur til svars: »Það er
alt frá Jesú«, sagði hann. Og svo
sagði liann foreldrum sinum, um hvað
Lísa og hann hefðu beðið.
En jólaengillinn, sem kom að í
þessu, grét af gleði. Og svo flaug
hann aftur til hallarinnar. Par sá
hann barónshjónin, sem þökkuðu í
sameiningu Guði friðinn og gleðina,
sem hann hafði sent þeim, og bless-
un þá er því íylgir, að gleðja aðra.
Svo sveif engillinn á léttum vængj-
um til hæða, og sagði frá því, hvernig
sér hefði tekist að færa mönnunum
frið og gleði, til dýrðar Guði í upp-
liæðum.
Góðar prédikanir.
Eg bendi bæði preslum og öðrum
á prédikanir nýútkomnar eftir séra
Olfert Ricard. Pær eru haldnar nú
á síðuslu árum í Jóhannesarkyrkj-
unni í Kaupmannaliöfn og hafa
vakið margar sálir af svefni og
glælt trúarlíf. Prédikanir þessar ná
yPir hvern lielgidag kyrkjuársins og
eru í tveimur bindum; heitir hið
fyrra Vinter og Vaar, en hið síð-
ara Sommer og Höst, koslar hver
bókin 3 krónur. Vekjandi ræður
og innihaldið, lifandi kristindómur.
Þekking á svo mörgum svæðum,
eínurð og djörfung þess manns, sem
nú er í fremstu röð kennimanna á
Norðurlöndum, þessu er hægl að
kynnast í þessum hókum. Við prest-
arnir höfum elcki ráð á því að láta
slíkar bækur fara fram hjá okkur,
við þurfum að veita hinum vekjandi
röddum eftirtekt, við, sem förum á
mis við svo margt, sem byggir upp,
erum oft svo einmana og einangraðir,
við verðum að bjóða kristinn vin
velkominn og njóta liinna hlessunar-
riku orða, starfi okkar í víngarði
drottins lil eílingar. Hér er kostur á
að eignast tímabær orð sístarfandi
manns í kyrkju Krists, orð eftir lærð-
an guðfræðing og kennara í prédik-
unarfræði, orð eftir Guðs þjón, sem
starfar með eldlegum áhuga.
Eg get ekki betur gert en bent
öðrum á það, sem mér sjálfum befir