Bjarmi - 15.12.1915, Síða 14
192
B J A R M I
orðið til ómetanlegrar blessunar. En
eg bendi með gleði. Eignist bækurnar
og lesið, það er vel bægt að útvega
þær. Bj. .7.
„Gimsteinar biblíunnar“
eða „Mannakorn“ heílr útgefandinn, hr.
Sigurjón Jónsson, afgreiðslum. »Æsk-
unnarff, sent Bjarma til umsagnar. Bað
eru „730 rilningarstaðir“, prentaðir á
pappír, sem límdur er á pa|)paspjöld.
Miðana má svo klippa úr spjaldinu,
hvern fj'rir sig, og geyma í öskju eða
stokki. Miðarnir eru svo notaðir á pann
hátt, að dreginn er einn og einn, og síð-
an er ílett upp í bibliunni þeim ritning-
arstað, sem á honum stendur.
Pessir miðar eru algengir erlendis hjá
kristnu fólki og hafa orðið mörgum
manni til blessunar, par sem orðinu
hefir verið réttilega viðtaka veitt.
Pessir ritningarstaðir eru teknir úr öll-
um bókum biblíunnar. Nú verður hægra
um hönd að nota pá, er tilvitnanirnar
eru allar islenzkar. Öllum, sem nokkuð
eru kunnugir bibliunni, mun veita hægt
að finna pá. Eins og flestir munu kann-
ast við, merkir , (komma) kapitula, en .
(punktur) vers t. d. Matt. 5, 3. þ. e.
Matteusarguðspjall 5. kap. 3. vers o. s. frv.
— Hentugt til jólagjafa. Ivostar 50 aura. —
Ör ýmsum áttum.
Heima.
Jólakveðjan 1915 er nýkomin og
farin með skipum og póstum út um allar
sveitir, og verður vonandi alstaðar kær-
kominn gestur meðal barnanna. -- Vænt-
anlega verða og myndirnar islensku til
danskra sunnudagaskóla komnar í tæka
tið til peirra, — en lítið er í Jólakveðju-
sjóðnum. Gjafir hafa borisl 3 kr. + 1,50
kr. frá séra Einari Thorlacius og 2 kr.
frá fröken A. Th., Rvík.
Erlendis.
Friðrik Bettex, þýzkur prófessor í
náttúrufræði, andaðist 15. seplember,
nærri áttræður að aldri. Hann skrifaði
siðustu 30 árin allmargar bækur um
kristindóm og náttúrufræði og hafa
sumar peirra komið út á dönsku, t. d.
»Det försle Blad i Bibelen«, »Ukendte
Verdener«, »Tvivl« o. fl. Eru þær fagur
vitnisburður um f að rækileg þekking
náttúruvísinda og bibliulegur kristindóm-
ur geta átt fulla samlcið, og jafnframt
eru pær ágæt trúvörn gagnvart þeim, sem
fullyrða í fávizku sinni, að náttúru-
vísindin komi í bága við kristindóminn.
Sunnudagaskólar í Khöfn héldu
fertugsafmæli sitt 10. okt. síðasil. Raunar
voru barnaguðspjónuslur byrjaðar par
miklu fyr. Árið 1835 fengu 2 Englend-
ingar skólakennara í Lyngby til að halda
barnaguðspjónustur, og studdi Carplína
Amalía, er siðar varð drotning, þær með
fjárframlögum. Sira Boisen, tengdasonur
Grundvigs, hélt og barnaguðspjónuslur í
Khöfn árin 1835 til 1848 og smám saman
bættust íleiri við. En pó var starf þetta í
molum, þangað til heimalrúboðið danska
tók pað að sér árið 1875 með nokkrum
fjárstyrk fyrst í stað frá sunnudagaskóla-
vinum i Englandi. Síðan hefir pað blómg-
ast mjög og borið mikla og góða ávexti.
Nú eru sunnudagaskólar og barnaguðs-
þjónustur á nærfelt 1000 stöðum hvern
helgan dag í Danmörku. — —
Við komum smám saman á eftir. Pað
eru yfir 20 ár síðan reglubundnar barna-
guðsþjónustur byrjuðu hér í Rvík. Prestar
vorir ræða mjög vingjarnlega um barna-
guðsþjónustur á prestafundum, og ein-
staka gera meira. Pannig skrifar séra
Jónmundur á Mjóafirði að barnaguðs-
pjónustur sinar séu mjög vel sóttar. Og í
Leirárkyrkju hélt úrsmiður frá Akranesi
barnaguðspjónustur eftir messu annan
hvern sunnudag í sumar sem leið.
Séra Porsteinn Briem á Hrafnagili
heídur og barnaguðspjónustur eftir
messu, svo oft sem hægt er, og væntan-
lega fleiri prestar. — Væri vel til fallið,
að þeir létu blað vort vita um það. Pað
er ekki svo mikið, sem gert er af frjálsri
kristilegri slarfsemi í söfnuðunum enn
þá, að það verði oflangt mál að geta um
það, — öðrum til uppörvunar. S. Á. G. J
Myndirnar af Dómkyrkjunni i
þessu blaði, hefir Porleifur Porleifsson
Ijósmyndari í Pósthússlræti tekið eftir
siðustu viðgerð á kyrkjunni. Hjá honum
fást Ijómandi falleg Ijosmyndabréfspjöld
með þessum myndum; eru það hentugri
jólakort en margt annað, sem notað er í
þvi tilefni.
Prcntsmiðjan Gutonnorg.