Bjarmi - 15.10.1920, Blaðsíða 3
BJARMI
155
ur vel, þrátt fyrir öll dýrtiðar-útgjöld.
í fyrra vetur voru nemendur lians 63,
36 piltar og 27 stúlkur. — Kennarar
skólans komandi vetur eru þrír.
Sra Runólfur Marteinsson skólastjóri,
kennir kristin fræði og islensku,
ungfrú Salome Halldórsson, kennir
tungumál og ungfrú May Anderson,
kennari i stærðfræði og náttúruvís-
indum. Safnaðafólkið greiðir megin-
hluta kostnaðarins með frjálsum gjöf-
um, og nú er verið að safna í hús-
byggingarsjóð. Árni Jónsson frá Mo-
zart lofaði t. d. að gefa I þann sjóð
500 dollara, ef 9 aðrir legðu til ann-
að eins fyrir næstu áramót.
Gamalmannahælið, Betel á Gimli,
sem skipað er tómum íslenskum
gamalmennum, er óskabarn allra
góðra manna, og fær stuðning úr
ýmsum áttum.
Prestaskortur er enn tilfinnanlegur,
og enginn íslenskur námsmaður að
búa sig undir prestsstöðu. Er það
raunalegur voltur þess, að prests-
staðan sje ekki eftirsóknarverð í aug-
utn ungra manna, og veldur því
sjálfsagt fleira en slæm launakjör.
frúmála-áhugi unga fólksins er yíir-
leitt sorglega lítill, en þó samt svo
Onikill skilningur og virðing fyrir
kristindómi, að flestir vita, að áhuga-
íausir menn eiga ekkert erindi í prests-
stöðu, — þólt þeir kynnu að geta
flutt sæmileg erindi um siðferðismál.
Von hvað samt vera um að sra Carl
Olson, sem gerðist Metódista-prestur,
gangi aftur i kirkjufjelagið, og bætist
Þá við góður starfsmaður.
Ágreiningsinálin við söfnuði þá er
tylgdu sra Friðrik Bergmann hvíla
S1g að mestu leyti, en ekkert befir
Þó orðið af, að neinn þeirra safnaða
Sengi í kirkjufjelagið, veldur þvi vafa-
laust talsvert tortrygni frá baráttu-
árunuuj. Sra Páll Sigurðsson, áður í
Bolungarvík, er eini prestur þessara
safnaða.
Heyrst hefir, að von sje á sra
Rögnvaldi Pjeturssyni, únítara-presti
í Winnipeg, til að fá tvo »únítara-
presta« hjeðan frá íslandi. Vegna
Tjaldbúðar málaferlanna hafði hann
samt ekki gétað komið þvi við í
sumar sem leið. Nú hefir yfirdómur
nýlega gert út um það mál. Slaðfesti
hann undirdóminn, og dæmdi Tjald-
búðarkirkju þeim safnaðarlilutanum,
sem hallast að kirkjufjelaginu en frá
Úniturum. Má þvi ætla, að sá söfn-
uður renni saman við kirkjufjelagið,
en samt eru eftir 8 söfnuðir, sem
gengu úr kirkjufjelaginu fyrir 10 ár-
um, og munu sjerstaklega þeir söfn-
uðir, sem sra Jakob Krislinsson þjón-
aði, búast við að fá prest frá íslandi.
Iiristniboða kirkjufjelagsins, sra
Óctavíus Thorlákssyni, blessast vel
kristniboðið í Japan; leggur kirkju-
félagið bonum 1000 dollara árlega,
en sameinaða lúlerska kirkjan bitt.
Annar Ameríku-íslendingur, A. M.
Loflsson, er orðinn krislniboði. Hann
kom á kirkjuþingið á leið sinni til
Kína, þar sem hann ætlar að starfa
á vegum ensk-ameríkansks fjelags.
Enn fremur er ung stúlka úr
Reykjavík í kristniboðsskóla í New-
York. Hún heitir Margrjet, og er
dóllir Jóns Sveinssonar og Bergljótar
Guðmundsdóttur, sem lengi bjuggu
í Gróubæ í Reykjavík. Hún fór til
Vesturheims fyrir nokkrum árum og
kyntist trúuðu fólki þarlendu, sem
styður hana til náms.
Skrifari kirkjufjelagsins, sra Frið-
rik Hallgrímsson, birlir stutla saman-
burðarskýrslu yfir hag fjelagsins síð-
ustu 10 árin.
1909 1919
Tala safnaða . . 39 62
Fólksfjöldi . . . 5297 7479