Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 15.10.1920, Blaðsíða 5

Bjarmi - 15.10.1920, Blaðsíða 5
BJARMI 157 Það er gamall orðskviður, að »þar sem Drottinn byggir kirkju, reisi Sat- an sjer »kapellu« um leið«. Og andatrúin er einmitt sú »kap- ella«, Satans sem hjer er um að ræða. Menn þrá að vita, hvort nokkurt líf sje til eftir þetta og hvort þeir geti fengið að sjá ástvini sína aftur. Þessari þrá fullnægir andatrúin fyllilega fyrir þá sem treysta önd- unum. Og svo er hún svo blessunarlega væg og mannúðleg í sjer. Hún kennir, að vegirnir til himins sjeu jafnmargir og mennirnir. Þar er enginn ræningi i nokkrum skógi, engin Satan, eng- in glötun. Og þá stendur á sama hver gatan er gengin til himins. Þá gengur hver þá götuna, sem honum er hægust, því að allir þiggja ljett- fellið. Það eru nú alls eigi skrípamyndir andatrúarinnar, sem jeg er hjer um að tala, hvorki höggin, sem andarnir láta dynja eða lilgangslaus borðdans nje hjegómlegar andasæringar. Nei, jeg trúi því fastlega, að á bak við þessa trú felist sterk andleg öfl, er gægjast út í miðlafarganinu, þegar bjúpurinn er dreginn af þeim; og eitthvað svipað má finna í æðistryll- ingi ýmsra trúarvinglsmanna innan kirkjunnar. Og jeg trúi því jafnframt fastlega, að þessir kraftar, sem hjer er um að ræða, sjeu myrkravöld, Satans anda- her, eða jafnvel Satan sjálfur í ljóss- engils líki (2. Kor. 11,14) og þá er hann ávalt hættulegastur. Og sannanirnar fyrir þessari slað- hæfingu og sannfæringu minni, finn jeg ekki að eins í því, að andatrúin lekur svo »vægt« á öllu og gjörir hverjum manni göluna til himins greiðfæra og hæga, heldur framar öllu öðru í þvi, að hún afneitar friðþæg- ingardauða Krists á krossinum. Sú afneitun er tilraunin gamla af Satans hálfu til þess að hann fái numið dýrðarljómann af höfði Drottins Jesú, til þess að himin sá, sem mennirnir þykjast hafa höndum tekið án Krists, skuli reynast þeim »hverful hylling og hugarburður manns«. Það er krossinn, sem um er bar- ist. Þú getur ekki með nokkru móti fengið öndunga til að »krjúpa Jesú krossi hjá«. Þeir geta eigi tilbeðið hann, sem lambið Guðs, sem ber synd heimsins. En með því votta þeir berlega, að það eru myrkravöld, sem skapa andatrúna. Hún er ambátt Satans til að villa menn og blekkja. Ó, hve jeg vildi, að mönnum gæti skilist þettal B. J. ísl. f— " - ■ ^ Heimilið. Deild þessn annast GuOrún L&rusdóttlr, VS ... —-o Hvar er bróðir þinn? Saga eftir Guðrúnii Lárusdóllur. I. Hjá prestinum. Loksins birti í lofti svo að sá til sólar; hún hafði verið hulin óveðurs- skýjum vikum saman. En jafnframt frysti, og jörðin varð brátt hulin ísa- lögum, sem gjörði mönnum erfitt fyrir að mörgu leyti. Gamla fólkið, sem var að staulast um götur bæj- arins fjekk að kenna á því. Það var ekki trúlt um að sumir sem yngri voru og hugsunarlillir hentu gaman að göngulagi þess á fljúgandi hálk- unni. Tveir ungir menn gengu leiðar sinnar fram hjá konu einni, sem með veikum burðum fetaði götuna hægt og varlega.

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.