Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 15.10.1920, Blaðsíða 16

Bjarmi - 15.10.1920, Blaðsíða 16
168 BJAkMl Sorglegt ef satt væri. Pjóðin er fjelaus. Stjórnin ráðalaus. Skuldin botnlaus. Skattur takmarkalaus. Stjórnmálin ærulaus. Löggjöfin hirðulaus. Löggæslan sjónlaus. Kirkjan stefnulaus. Blöðin kærulaus. Viðskiftin samviskulaus. Mentunin mállaus. Góðsemi gagnslaus. Sparsemi húsnæðislaus. Eyðslan hóflaus. Sannleiksást heilsulaus. Æskan agalaus. « Aldraður iðjulaus. Ellin vonlaus. Alt af því að veröldin er guðlaus. (Tekið að nokkru úr þýsku hlaði). Hvaðanæfa. ^ --------- „ . jj Heima. Greinin »Frá einni villu —« í septem- berblaði Bjarma hefir vakið talsverða eftirtekt. Tveir prestar hafa þakkaö liana brjefiega og ýmsir fleiri munnlega. — Sumir liafa samt reíðst henni. Tveir kaúpendur, sambýlismenn við guðspek- inga, hafa hátíðlega lýst yfir brjeflega: »að þeir skoði sig lausa við blaðið«. En um 20 nýir kaupendur í Rvík komu í staðinn i sömu viku. Síra Jakob Iíristinsson, for- maður guðspekisfjelagsins, skrifaði langa grein í Tímann gegn þessari grein og reynir þar sjerstaklega að hrekja það. sem vjer sögðum ekki. Er það gömul að- ferð og liandhæg, en ekki að sama skapi heilladrjúg gagnvart hugsandi lescndum. Svar kom frá oss, og aftur frá honum, en óvíst vjer hirðum um að halda þeim skrifum áfrain. Pað sannfærir livorugur annan, og sjónarmiðin eru ólík. því lif- andi kristindóm skrifar liann með »gæsa- löppum«. — En þó vjer svörum ekki í sömu mynt, þegar trúmála andstæðingar ráðast að oss með persónulegum dylgj- um og illyrðum, þá þurfa þeir ekki að hugsa, að með þeirri aðferð geti þeir hrætt oss — og vonandi fáa aðra, — til að dylja skoðun vora á trúmálastefnu þeirra. — Sjálfsagt telja það heldur ekki allir meðmæli með guðspeki, ef læri- sveinar hennar geta ekki varið stefnu sína án þess að koma með persónuleg ónot eða brigslyrði. Rilstj. Bjarma. Prentvilla var í einu erindi sra. G. G. í siðasta tölublaöi: þið fyrir pótl og er þá: Hjátrúar- þótt verpið óspart -eggjum, ekkert þeirra verða mun að fugli. Erlendis. Theodor Kaftan, fyrv. biskup í Sles- vík og góðkunnur rithöfundur skrifar í þýskt tímar. (Der Allgemeinen Evangelicsh — luth. Iíirchenzeitung 1919, 4) grein er heitir »Hreinlæti í kirkjunni«, er þar þessi kafli: »Enda þótt byltingarnar miklu í þýsku föðurlandi voru hafi flutt margan sárs- aukann með sjer, þá má þó með þakk- læti við Drottinn heilsa þeirri blessun, að í stormunum hefir hið aunia ríkiskirkju fyrirkomulag greinilega og jeg vona fast- lega lirunið til /ulliuislii í rústir. Siðferðisleg órjettmæt yfirráð rikisins yfir evangeliskri kirkju eru hætt, Guð hefir dæmt þau í þessum stormum. Sorg- legt er það og tjón að slík bylting skyldi þurfa að verða til að afnema liið löngu úrelta ríkiskirkju fyrirkomulag. En úr því hún er komin, ættum vjer ekki að láta það spilla fyrir oss hinni siðferðis- legu ánægju yfir þessum dómi, að svo margt annaö sem oss var kært og mikils- vert hefir einnig lirunið í byltingunni«. Lesendurnir eru beðnir að ihuga, að maður sá sem svo kaldranalega talar um ríkiskirkju fyrirkomulagið er enginn litt reyndur nýgræðingur, heldur kominn yfir sjötugt, og liefir gegnt biskupsstörfum nál. 30 ár í þessari ríkiskirkju, sem hann er að kveðja. Næsta blrn) 15. nóvember. Útgefandi Sigurbjörn Á. Gíslason. PrenUmifl]an Gutenberg,

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.