Bjarmi - 01.01.1923, Page 15
BJARMI
11
I brjefum áður hefi jeg dálítið
minst á kinverskunámið; fyrsta prófi
lauk jeg í vor, og er nú að lesa und-
ir annað próf; þriðja og síðasta próf
þarf jeg ekki að táka fyr en jeg sjálf-
ur kýs. Eins og að undanförnu veiti
jeg nú nokkrum piltum tilsögn í
orgelspili, og söngæfingar hefi jeg á
miðskólanum hjer einu sinni á viku.
í norska skólanum hjerna kenni jeg
líka 6 tíma á viku. Annars verð jeg
að verja öllum stundum til kinversku-
náms. En eftir nýár stækkar máske
verkahringurinn ofboðlítið, en lijer á
við að birta að eins það, sem gert
er, en ekki alt sem er ógert.
Gleymum þó ekki þvi, sem ógert
er í Kína. Ef vér trúum því, að Jesús
sje eini vegurinn til lífsins, þá gleym-
um ekki miljónunum i Kína, sem
aldrei hafa heyrt hans getið. Neyðin
er mikil í Kina, og hún stafar öll af
því, að þjóðin þekkir ekki Guð og
son hans, Jesúm Krist. fó heiðingj-
arnir lifðu i allsnægtum og »liði vel«
í timanlegu tilliti — en þektu ekki
Jesúm, mundu kristnir menn telja
það nóga neyð og ljetu ekkert letja
sig frá að leggja alt i sölurnar til
þess að veita þeim fræðslu um hann,
sem er vegurinn, sannleikurinn og
lífið.
Með einlægu þakklæti fyrir fyrir-
bænirnar mörgu á árinu liðna, og
bæn til Guðs um nýja náð og bless-
un yfir sjerhverja starfstilraun þeirra,
er elska komu ríkis hans.
Laohakow 7. október 1922.
Yðar í þjónustu Meistarans
Ólafur Ólafsson.
Sira R. Sörensen, frá Suðurjótlandi,
boðsgestur kristniboðsfjelaga i Rvk og
Hafnarf., hefir haldið fjölda fyrirlestra með
skuggamyndum i Rvík og nágrenni fyrir
fjölda fólks. Meira um pað siðar.
Hvaðanæfa.
^
»Frá Danmörku. Snemma í vetur
voru par kosnar sóknarnefndir, i 2. sinn,
— svo skamt er siðan pær nefndir voru
lögboðnar. Voru kosningarnar viða sóttar
af kappi, keptu pá bæði trúmála og pjóð-
málastefnur og veitti ýmsum betur. Hefir
valdsvið sóknarnefnda verið stórum aukið
liöið ár; meðal annars er peim ætlað að
kjósa biskupa með prestunum. En nú
stóð svo einkennilega á, að pað átti að
kjósa hvorki meira nje minna en 5 bisk-
upa í vetur i Danmörku. Koch biskup í
Rípum, sem nýbúið var að veita Fjóns-
stifti, andaðist i nóvember. Wegener biskup
yfir Lálandi og Falstri sagði af sjer fyrir
elli sakir, og auk pess eru 2 biskups-
dæmi nýstofnuð, annað erkent við Hróars-
keldu og nær yfir alt Sjáland utan Hafn-
ar, hitt er kent við Haderslev og nær um
Suður-Jótland. í Hróarskeldu-stifti, hinu
nýja, eru 12 prófastsdæmi, 204 atkvæðis-
bærir prestar og 309 sóknarnefndir með
samtals 2076 nefndarmönnum. Er síst
furða pótt töluverður undirbúningur hafi
verið lijá svo mörgum kjósendum, enda
voru sífeld blaðaskrif og fundahöld um
biskupsefnin í Danmörku um hríð i vetur.
Frá Pýskalandi. Evangeliskt blaða-
manna ping, fjölsótt, var haldið í Berlin
um miðjan nóv. i vetur. Trúmálablöðin
búa par mörg við pröngan kost vegna
dýrtiðar — og evangelisk blöð deyja
miklu fleiri en kaþólsk. Er fullyrt að
kaþólskir menn kunni öðrum fremur að
nota áhrif trúmálablaða, og fylgja trúlega
skoðunum Piusar páfa X. er mælti: »Pótt
pjer reisið kirkjur og skóla unnvörpum,
pá mistekst alt saman nema pjer getið
komið út blöðunum«.
Á pingi pessu var fullyrt, að ekki væri
nema um hálfönnur milljón Pjóðverja,
sem hlustuðu á prjedikanir að staðaldri,
en kristilegu safnaðablöðin næðu aðjafn-
aði til II milljóna; og er pá auðsætt hvort
er áhrifameira.
Trúarbragðakenslan í barnaskól-
um hefir verið ákaft deilumál með Pjóð-
verjum síðustu árin. Fyrst eftir stjórnar-
byltinguna haustið 1918 virtust andstæð-