Bjarmi

Årgang

Bjarmi - 01.09.1923, Side 13

Bjarmi - 01.09.1923, Side 13
BJARMI 160 Helgu var orðið svo tamt að leggja hlustir við sjerhverri stormhviðu, og hugsa þá jafnframt til sjómannanna, úti á hafinn. Vindhraðinn óx og frost- ið steig, og óróakend hugaræsing gagntók Helgu. Var það storminum að kenna? Hann fór hamförum i skammdegismyrkrinu og þeytti hvítu sjávarlöðri upp að klettóttri strönd- inni. Hún settist í hægindastólinn sinn og ljet hugann reika viða. Horfin augnablik komu til hennar ýmist til sælu eða sorgar, og þráin greip utan um hjarta hennar, þráin, sem ástin vekur. Hún fól andlitið í höndum sjer. — Hákon! — Hákon! Henni var sem hún sæi hann, ungan, fríðan, hraustan, búinn æskunnar bestu kostum, — ástrikan og góðlyndan — uns vínið kom eins og höggormur inn í Paradís og flúið var á svip- stund allt hið fagra og góða, sem átti þar áður heima. Hákon! Hákon! — Hún hafði elskað haun og gefið hon- um hönd og hjarta, — sjálfa sig, já jafnvel samvisku sína og sálarfrið. Hákon! Hvernig fórstu að svíkja hana í trygðum? Hvernig gastu látið vín og vonda fjelaga tæla þig burt frá þessari tryggu sál? Hákon! — það var eins og kvala- full stuna, sem kom frá aðþrengdu brjósti þeirra konu, sem eitt sinn unni og var unnað, en var nú gleymd og ástum horfin. Sjerhver umliðin stund, liktist blóðugri und, þegar hún ósjálfrátt og því nær óviljandi fletti blöðunum í dagbók liðins lífs síns. Og þó hefði hún kaliað þær aftur, liðnu stundirnar, ef þess hefði verið kostur, svo að hún mætti enn þá einu sinni halla höfði sínu að vinar brjósti og hlusta á indælt ástarorð, af vinarvörum. — Og þá ætlaði hún að segja honum að allt misjafnt væri horfið úr huganum og grafið í djúp gleymskunnar, er fyrirgefning, dóttur ástarinnar, sæti ein að völdum i hug- ardjúpinu. Hún hrökk skyndilega upp frá þessum hugleiðingum við hark mikið Fyrir dyrum úti stóð hópur sjómanna sem báðust gistingar. Það voru út- lendir skipbrotsmenn sem eftir langa mæðu höfðu loks náð höfn. Helga heilsaði þeim alúðlega og bauð þeim til stofu. Þeir báru einn fje- laga sinn og lögðu liann í legubekkinn í stofunni. Maðurinn var vafinn sjó- klæðum og bærði ekkert á sjer. »Hann er mjög þjakaður,« sagði skipstjórinn sem mælti vel á danska tungu. »Og þyrfti að fá sjerherbergi og góða hjúkrun. Hann meiddist mikið á höfði. Jeg batt um sárið eftir föngum, en eins og á stóð vantaði mig eigin- lega allt sem að umbúðum lítur, jeg veit þvi að sárið hlýtur að hafast illa við. Best væri að ná i lækni, en sje þess eigi kostur, má jeg til með að biðja yður um að hjálpa mjer að ganga betur frá meiðslinu«. »Því miður mun eigi vera unt að ná til læknis í nótt,« sagði Helga. »Hann fór að heiman í morgun, og er ekki kominn aftur, en það er vel komið að jeg hjálpi yður eftir því sem jeg get, en er þá ekki best að bera sjúkl- inginn í rúm? Jeg hefi gott herbergi handa honum, þar sem hann getur verið í fullkomnu næði?« »Þakka yður fyrir,« svaraði skip- stóri kurteislega, og gerði mönnum sínum bendingu um að bera fjelaga þeirra inn í herbergi, sem Helga vis- aði þeim á. »Mjer er talsvert ant um þennan mann,« sagði skipstóri og gekk að rúminu þar sem sjúklingurinn hafði verið lagður, »jeg vildi mikið til vinna að honum gæti batnað.« Helga fór að losa umbúðirnar af höfði mannsins. Hár hans var tals-

x

Bjarmi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.