Bjarmi - 15.06.1927, Side 1
BJARMI
XXI. árg. Reykjavík, 15. júní 1927 17.—18. tbl.
„Hlutdeild þín í trúnni verði mikilvirk til handa Kristi í þekking alls hins góða, sem með oss bvr“. Filemon 7).
t
iroi JóhanflSsoQ bankamaður
sextugur.
Pað eru svo fáir leikmenn, sem
að kristindómsmálum starfa á landi
voru, að þessir fáu vekja umtal og
eftirtekt. Áhugalaust fólk »er hissa á
þeim«, andstæðingar kristindóms eru
þeim gramir, og trúaðir menn unna
þeim. Munu fáir hafa reynt meira af
því öllu en Árni Jóhannsson. Tólf
trúmálarit hefir hann ýmist þýtt eða
frumsamið og margoft flutt erindi
um trúmál. Allir kannast við að ytri
frágangur þeirra var góður, en efnið
hefir stundum vakið gremju þeirra,
sem aðrar leiðir vildu fara, því að
Árni hefir talað skýrt og ákveðið
gegn allri afneitun.
Á afmælisdaginn hans, 13. þ. m.,
flutti »Vísir« mjög hlýleg ummæli
eftir Bjarna Jónsson, meðhjálpara við
dómkirkjuna, um sjálfan hann og
seinustu bókina, sem Á. Jóh. þýddi,
söguna: »Hvar eru hinir níu? —
Og sama dag ílutti »Alþýðubl.« eftir-
farandi grein eftir síra Bjarna Jóns-
son dómkirkjuprest. Hún hljóðar svo:
»Árm' Jóhannsson bankamaður er
sextugur í dag. Menn kannast við
bankamanninn, sem með þekkingu
og dugnaði rækir starf sitt. Þó eru
þeir enn fleiri, sem kannast við trú-
manninn og rithöfundinn; þeir þekkja
hann, þó að margir þeirra hafi ekki
sjeð hann, og það er víst, að fjölda-
margir hugsa í dag með hlýjum huga
til Árna Jóhannssonar og eru hon-
um þakklátir fyrir það, er hann hefir
ritað til andlegrar uppbyggingar.
Árni játar trú sína með einurð og
djörfung, og það vita allir, sem til
þekkja, að trúin er honum heilagt
alvörumál, og frá því segja hin mörgu
rit, sem hann hefir gefið út. Á hann
þakkir skilið fyrir rit sín, sem hafa
veitt mikinn stuðning sönnu, heilögu
málefni. Margir eru þeir, sem gleðj-
ast yfir því starfi, því að þeir eru
vissir um, að það ber ávöxt. Þeir
hinir sömu árna honum sextugum
allra heilla og óska honum gæfu og
gengis«.
Jód Helgason prentari
fimmtugur.
í dag verður Jón Helgason fimm-
tugur. Því miður vissi jeg þetta svo
seint, að jeg gat ekki látið grein þessa
koma út á afmæiisdegi hans. Jeg
efast þó ekki um, að margir Reyk-
vikingar veröi til að gleðja hann.
Annað væri minkun.
Jón prentari Helgason er einn af
þeim mönnum þjóðar vorrar, er vill