Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 15.10.1928, Blaðsíða 3

Bjarmi - 15.10.1928, Blaðsíða 3
BJARMI 211 postularnir voru liðnir og trúarhitinn og andagiftin í rjenun hjá öllum þorranum, en jafnframt þeim sífjölg- andi í hríðvaxandi söfnuðum, sem voru ungir i trúnni og þurftu sjer- stakrar fræðslu og umhyggju við, lagðist það á herðar þessara for- stöðumanna, að hafa sálgæsluna, uppbj^gginguna og áminninguna meö höndum. Til þess munu einnig hafa verið valdir með það fyrir augum, þeir álitsmestu og reyndustu. Sem sagt: forstöðumennirnir tóku að erfð- um hlutverk þeirra, sem andagáf- urnar fjellu í ríkustum mæli í skaut i fyrstu: postulanna, spámannanna, fræðaranna og stjórnendanna. í stór- um söfnuði urðu auðvitað þessir menn nokkuð inargir. Við það mynd- ast nokkurs konar forstöðumanna- stjett. Síðar skiftist hún í æðri og lægri flokka innan kirkjunnar, með sjerstökum yfirmanni i einstökum hjeruðum. Hún er irumstig andlegu stjettarinnar, þar sem biskuparnir eru yfirmenn, og enn er stigmunur á klerkum og djáknum og öðrum óæðri safnaðarþjónum. Upphaflega voru forstöðumennirrir ólaunaðir og senni- lega valdir rjett um stundarsakir, en þegar hjer er komið, á annari og þriðju öld, eru stöður þeirra orðnar að fastlaunuðum embættum, og menn vigðir til þeirra með sjerslöknm hætti. Og vígslan er það framar öllu öðru, sem skapar þeim virðinguna og valdið, og greinir þá að fullu frá leikmönnunuin. í Hirðisbrjefunum er all-ítarlega lýst skyldum forstöðumanna safnað- anna. Og Kirkjusagan ber þess vitni, að skyldur þjóna safnaðanna hafa í aðal-dráttunum verið hinar sömu á öllum öldum og innan allra kirkju- deilda. En þessi tel jeg að ætið hafi verið höfuð-hlutverk prestanna: 1. Að frœda söfnuðina í andlegum efnum. þeir taka við því af postul- unum að prjedika orðið, þ. e. að boða það með lestri hinna helgu rita og að útskýra það, og jafnframt að votta áreiðanleik þess. En sjer í lagi verða þeir að uppfræða þá yngstu i trúnni, bæði þá, sem ganga inn í söfnuðina, og unglingana, sem eiga að geta orðið sjálfstæðir safnaðar- limir. 2. Prestunum heyrir að vera ámirmendur. Þeim ber ekki að eins að ganga á undan með góðu eftir- dæmi, þeir eiga líka, ef svo mætti að orði kveða, að vera eftirlitsmenn með liferni safnaðar-meðlimanna, — vanda um alt sem aflaga fer, en stuðla að því, að áhrif keuningar- innar auglýsist af dagfarinu, að ein- staklingarnir játi Krist ekki bara með vörunum, heldur sjeu í raun rjettri lærisveinar hans. 3. Prestarnir eru huggarar safnað- arins. Þeir eru skyldir til að reyna að hugga syrgjendur og færa sjúkum fró. Þeim ber að vitja allra sem bágt eiga, hvort heldur í andlegu eða likamlegu tilliti, og gera sjer far um að hjálpa þeim. 4. Sakir hinnar sjerstöku vígslu til embættisins, er venjan sú um umliðnar aldir og enn í dag, að prestarnir hafa einkarjett til að út- hluta hinum heilögu sakramentum og til að vinna fleiri embættisverk, svo sem ferming, hjónavígslu, greftrun o. fl. 5. Laust fyrir lok níundu aldar er orðið alsiða innan kristninnar, að allir gangi til skrifta fyrir prestun- um, áður en þeir neyta hinnar hei- lögu kvöldmáltíðar, og eins oftar, er þeir hafa þess þörf. Jafnvel í mót- mælenda-kirkjum hefir eimt eftir af þeim sið í breytlri mynd til siðustu ára. En sem skriftafeður safnaðanna

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.