Bjarmi

Volume

Bjarmi - 01.12.1933, Page 11

Bjarmi - 01.12.1933, Page 11
B J ARMI 179 lítið (að ekki sje sagt eftirlitslaust) hafa þau verið reist sumstaðar, enda reynast þau að sumu leyti vart hæf til íbúðar. Pað má þykja eðlilegt, að í fjölbygðum kaupstöðum, eins og Reykjavík t. d., sje það skilið sem skylt að reisa einvörðungu steinhús á aðalbæjarsvæðinu, vegna bruna- hættu og fleira.; þar eru og best tök á að gjöra þau vel úr garði og að öllu við- unanlega, eftir því sem á stendur. En jeg tel varlesra í það farandi að gjöra slíkt að skvldu upp um hjeruð. Þó hefir enn ver- ið vegið í þann sama knjerunn í lögunum frá 1931 um hýsing prestssetra. Og eins munu kirkjuvöld, ráðuneyti, biskup, menntamálaráð (sem samkv. lögum frá ’28 hefir nokkurt ályktunarvald í þessu efni) algjört nú orðið vilja áskilja, að því er bygging kirkna snertir, að þær skúli gjörðar af steini (steinsteypu), þótt engan hljóti þær opinberan styrk, heldur aðeins naumt lán af kirknafje; svo mjög hefir að þessu kveðið á síðkastið, að dæmi er til þess, að í stappi hefir gengið (fyrir 2—3 árum) að fá að gjöra upp timbur- kirkju úr sama efni, enda þótt sú kirkja ætti sjálf eign fyrir sínum kostnaði og þ.vrfti ekki að fá lán úr kirkjusjóði (hin- um almenna). — Er þetta rjettmætt? Er það hyggilegt og heppilegt? Á kosti og ókosti steinhúsa (og stein- kirkna) hefir áður lítillega verið minst. Þau geta verið góð, — og það er vitað, að steinhús gjörð með tvöföldum veggjum og tróði í milli, reynast allvel, ef til alls er vandað (en einmitt þar er sjerstakur vandi á ferðum, eigi alt vel að fara); en þannig eru kirkjur ekki bygðar. En sem sagt, er steinhús mistakast, eru þau raun- verulega slæm. Með þessu er ekki verið að neita, að einhverjar steinkirkjur kunni að hafa reynst sæmilega, nje að svo verði áfram. Ef menn gjöra sjer alt far um, þar sem kirkjur eru í smíðum eða verða reistar úr steini, að vanda til þeirra í hví- vetna, að allri gerð, umbúnaði og upphit- un, mega menn vissulega vænta góðs af húsinu. En fyrirkomulagið er jafn var- hugavert fyrir því, alment tekið, ef ein- strengingslega er á málum haldið. — Menn tala um að miklar byggingar eigi að vera »varanlegar«, hús reist fyrir lánsfje lögum samkvæmt (og fyrir lánsskuldinni eiga þau að standa að veði); opinberar bygg- ingar eigi að endast og — umfram alt kirkjur að haldast jafnvel öld eftir öld. En hví skyldu kirkjur endast öðru framar? Víst er reyndar um það, að hinar frægu kirkjur ýmsar út um lönd hafa vel staðist tímans tönn, en þeim er nú ekki saman að jafna við kirkjur hjer á landi, enda eru hinar gömlu kirkjur ekki gerðar úr hinni nýrri steinsteypu. En steinkirkjur höfum vjer. Lítum nú á málið og gerum saman- burð, til almennara yfirlits. Steinhús standa lengur en timburhús (ef þau ekki hrynja, sem er mjög sjaldgæft, en gæti borið við t. d. í jarðskjálftum); en er alt fengið með Idví? Segjum, að sæmileg stein- kirkja í hjeraði kosti 20 þúsund kr.; timb- urkirkju (í bráðina eins góða) megi reisa fyrir helmingi minna verð, 10 þús. kr. Sú kirkja yrði ágæt til að byrja með, vel bygð úr g'óðum trjávið, og fólkið kynni henni að ýmsu leyti betur (sbr. áður sagt), en þyrfti auðvitað eitthvað meira viðhald, og' þó getur oi'ðið spurning um það, ef ekki tækist vel til með steinsteypuna í hinni o. s. frv. Timburkirkjuna þarf að gjöra upp, ef til vill eftir 40 50 ár, eða jafn- vel byggja nýja kirkju (og gæti þó verið, að ekki þyrfti þess fyr en eftir 60- -70 ár). Þá stendur steinkirkjan enn •— en hvérnig er hún? Þær eru að vísu ekki sjerlega fallegar kirkjurnar eins og húsa- meistarar vorir nú tpikna þær, en hvað munu þær þykja eftir hálfa öld? Hver veit, hvernig menn þá una húsagerð, eða úr hverju efni þá verður bygt? Munu menn þá una sjer í þessum — að vísu helga steini? Og mun þá auðgjört að breyta til um steininn? Nei, ekki nema með því

x

Bjarmi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.