Bjarmi

Årgang

Bjarmi - 01.12.1933, Side 12

Bjarmi - 01.12.1933, Side 12
180 BJARMI að ónýta hann algjört með miklum kostn- aði eða blátt áfram að »yfirgefa« hann. Nú sparaðist í dæminu helmingurinn, 10 þúsund kr., við að byggja þægilega timburkirkju (sem reisa ma nærri á hvaða grunni sem er, en undir þung steinhús er hann mjög vandfundinn eins óg kunnugt er), í stað þess að byggja úr steinsteypu. Ilvað er nú 10 þús. lcr. á vöxtuvi orðnar eftir hálfa öld (eða meir)? Upphæðin hef- ir margfaldast, tífaldast (með nú venju- legum vöxtum og vaxtavöxtum orðin 100 þús. kr.). Hvað mætti þá ekki byggja fyr- ir það fje, og eins og menn þá teldu hagan- legast og prýðilegast! Og hvað eru menn annars að tala um varanleik og jafnvel »ævaranleik« í húsa- gerð, t. d. kirkna? Vjer erum ekki, Is- lendingar, komnir á, það stig í þeirri grein, að vjer getum boðið eyðingunni byrginn. Og svo eru nú öll mannanna verk for- gengileg, einnig kirkjubyggingar, hvernig sem þær eru; aðeins eitt er varanlegt, en það er ekki húsin sjálf .... Alt þetta bendir til þess, að méð gætni og varúð ber að taka á þessum málum og ávalt með það fyrir augum: Að vanda alt sem best, hvor byggingarleiðin sem farin er. En göngum nú, þrátt fyrir þessar álykt- anir, sem gerðar hafa verið hjer að fram- an, inn á, að rjett sje í höfuðatriðum að byggja úr »steini« áfram, halda sjer við það, að opinberar og hálf-opinberar bygg- ingar skuli gjörðar úr því efni, þó þann- ig að sjeð verði um, að haldið sje megin- reglunni - að þær verði ávalt og hvar sem er gjörðar eins vel og vit og föng eru til í landi. Að því er kirkjur snertir, sje und- antekningar leyfðar og timburkirkjur megi reisa, þar sem staðhættir og önnur að- staða safnaða mælir með því, eða blátt á- fram þar sem söfnuður vill, enda sje þá og bygt undir umsjón. Er þetta miðað við, að það/sjeu söfnuðirnir, sem verði að bera kirkjurnar uppi. Niðurlag, Sóknarnefndafundurinn 7.-9. nóv. 1933. Sóknarnefndafundurinn, sá 8. í röðinni, hófst hjer í bænum á þriðjudaginn 7. nóv. með guðsþjónustu í dómkirkjunni, þar sem sr. Brynjólfur Magnússon frá Grindavík prjedikaði. Fundarhöldin sjálf fóru fram í húsi K.F.U.M. og hófust kl. 4 síðd. á þriðjudag, Formaður i ndirbúningsnefndarinnar, S. Á. Gíslason, setti fundinn. Fundarstjóri var kosinn Ölafur Björnsson, kaupmaður á Akranesi, og til vara S. Á. Gíslason; íundarskrifari var kennslukona Halldörá Bjarnadóttir í Háteig og til vara Tómas Snorrason frá Grindavík. Fyrsta fundarmálið var »Kirkjur og prestar«. Flutti Gísli Sveinsson sýslum. skörulegt inngangserindi í því máli. Mint- ist hann á m. a., að steinkirkjurnar, sem nú væru almennt reistar, væru oft engan veginn eins vönduð hús og skyldi. En hins- vegar væri svo komið högum fólks í fá- mennum söfnuðum, að því væri ofvaxið að reisa vandaðar kirkjur, ef ekki kæmu til stórar gjafir eða annar styrkur. Taldi ræðumaður eðlilegast, úr því að þjóðkirkja væri í landinu, að ríkið annaðist jafnt kostnað við kirkjubyggingar og það ann- ast laun presta, — en tæki aftur alveg við sjóðum kirkjunnar. Umræður urðu miklar um þetta erindi og var 5 manna nefnd sett til að koma með tillögu í málinu dagínn eftir. Um kvöldið kl. 9 flutti Jón Jónsson lækn- ir fróðlegt inngangserindi um kirkjusöng og rakti sögu hans, sjerstaklega hjerlend- is. Á miðvikudagsmorguninn flutti sr. Bjarni Jónsson dómkirkjuprestur morgun- bænir. Pá flutti sr. Sig. Z. Gíslason langt og ítarlegt erindi um skipidag kirkjunnar. Kom hann víða við og vildi gera þar mikl- ar breytingar. Urðu töluverðar umræður um málið, en engin ákvörðun tekin.

x

Bjarmi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.